Fréttir

Oddfellowreglan á í vök að verj­ast gegn fyrr­ver­andi féhirði

Oddfellowreglan á eignir upp á þrjá millj­arða króna. Æðstu menn í regl­unni segj­ast hafa þurft að sitja undir hót­unum og dylgjum fyrr­ver­andi félaga og féhirðis um ára­bil. Ómar Sig­urðs­son seg­ist hafa hætt í regl­unni vegna fjár­mála­mis­ferlis og hefur hann ítrekað sakað regl­una um stór­felld skatta­laga­brot. Leið­togar regl­unnar segja ekk­ert vera hæft í ásök­unum Ómars og ekk­ert bendi til að rann­sókn standi yfir.
MenningUmræða um rasisma

Deilan um „End­ur­komu negrakóngs­ins“

Sænski lista­mað­ur­inn Makonde Linde hefur staðið í stappi við stjórn­endur Kult­ur­hu­set í Stokk­hólmi vegna sýn­ingar sem hann opnar í lok mán­að­ar­ins. Benny Frederik­sen, for­stjóri Kult­ur­hu­set, bann­aði lista­mann­inum að nota tit­il­inn með n-orð­inu og leiddi deilan til þess að stjórn­andi á safn­inu sagði upp störfum. Lista­mað­ur­inn ætlar hins vegar að standa á sínu.
FréttirFjármálahrunið

Aflands­fé­lag í Lúx á nú sveita­setrið sem Sigurður Ein­ars­son byggði

Aflands­fé­lag í Lúx­em­borg skráður eig­andi sveita­set­urs Sigurðar Ein­ars­sonar í Borg­ar­firð­inum. Við­skiptin með húsið fjár­mögnuð með krónum sem fluttar voru til Íslands frá Lúx­em­borg með afslætti í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Pró­kúru­hafi félags­ins sem á sveita­setrið seg­ist ekki vita hver á það.

Mest lesið undanfarið ár