FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Vil­hjálmur hættir hjá Sam­fylk­ing­unni: Sagði ekki frá félag­inu sínu á Kýpur

Vil­hjálmur Þor­steins­son tal­aði um félag sitt í Lúx­em­borg sem opin­bert var að hann ætti en sagði ekki frá félag­inu sínu á Kýpur, Alamina Ltd. Félag hans á Kýpur er dótt­ur­fé­lag fyr­ir­tæk­is­ins í Lúx­em­borg og fjár­magnar við­skipti hans á Íslandi auk þess að halda utan um hlut í CCP. Hann sagði ekki frá Kýp­ur­fé­lag­inu fyrr en eftir að það var orðið opin­bert að hann tengd­ist því.
FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Banka­maður Bjarna í Sviss tjáir sig um skatta­skjóls­málið

Bjarni Mark­ús­son sinnti eigna­stýr­ingu fyrir Bjarna Bene­dikts­son í Glitni og hjá Julius Baer í Sviss. Hann segir að sér „vit­an­lega“ hafi Bjarni Bene­dikts­son ekki stundað við­skipti í gegnum skatta­skjól. Ægir Birg­is­son og Baldvin Vald­irmars­son voru við­skipta­fé­lagar Bjarna í Dubaí en eign­ar­haldið á fast­eigna­verk­efn­inu lá í gegnum skatta­skjólið Seychells-eyju.
FréttirLögregla og valdstjórn

Vopnaður lög­reglu­maður keypti sér sam­loku

Lög­reglu­þjónn var með skamm­byssu í belt­inu á meðan hann keypti sér að borða á veit­inga­stað á Lauga­veg­inum um helg­ina. Starfs­maður segir að sér hafi verið mjög brugðið og sendi fyr­ir­spurn á Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna máls­ins. Stjórn­andi sér­sveit­ar­innar segir engar fastar reglur í gildi um vopna­burð lög­reglu­manna í mat­máls­tímum. Atvikið er til athug­unar hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Hafn­ar­fjarð­ar­bær vill St. Jós­efs­spít­ala og átta önnur til­boð hafa borist

Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur hafið við­ræður við íslenska ríkið um kaup á St. Jós­efs­spít­ala. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar segir átta til­boð hafa borist í húsið. Teitur Guð­munds­son læknir er einn af þeim sem er áhuga­samur um rekstur í hús­inu. Hafn­ar­fjarð­ar­bær hefur gefið það út að hann vilji sjá heil­brigð­is­þjón­ustu í hús­inu. Engin starf­semi hefur verið í hús­inu frá því í árs­lok 2011.
Fréttir

Bjarni seg­ist óaf­vit­andi hafa haft félag í skatta­skjóli - Ólöf með umboð fyrir félag á Jóm­frú­areyjum

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, átti þriðj­ungs­hlut í félagi á Seychelles-eyjum. „Nei, ég hef ekki verið með neinar eignir í skatta­skjólum eða neitt slíkt,“ sagði hann í fyrra. Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra var með umboð fyrir félag í Bresku jóm­frú­areyj­unum. Hún segir það hafa verið vegna ráð­gjafar Lands­bank­ans.
FréttirPlastbarkamálið

Afhjúp­andi tölvu­póstar í plast­barka­mál­inu: „Ég held að það styðji upp­haf­legt mat okkar“

Tölvu­póstar í Macchiarini-mál­inu, sem aldrei áður hafa verið birtir opin­ber­lega, sýna hvernig reglur voru brotnar í mál­inu. Paulo Macchiarini og yfir­læknir á Karol­inska-sjúkra­hús­inu, Richard Kuy­len­sti­erna, tóku ákvörðun um að gera plast­barka­að­gerð­ina á Andemariam Beyene í sam­ein­ingu og reyndu svo að fá sænsku vís­inda­siða­nefnd­ina og sænska eft­ir­lit­lits­stofnun til að stað­festa aðgerð­ina. Sam­þykkið var aldrei veitt en Kuy­len­sti­erna gaf sér að svo hefði verið.
Erlent

Kakka­lakk­arnir í frum­skóg­inum

Þúsundir ein­stak­linga halda til í flótta­manna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bág­bornar aðstæður í „frum­skóg­inum“ eins og búð­irnar eru kall­aðar hefur íbú­unum tek­ist að byggja upp sam­fé­lag sem þeir til­heyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjón­ustu í þorp­inu, svo sem bóka­söfn, menn­ing­ar­mið­stöðvar, veit­inga­staði, moskur, kaffi­hús og kirkjur. Frönsk yfir­völd rifu hins vegar niður stóran hluta búð­anna og óvissa ríkir um fram­haldið.

15 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Eru arð­greiðsl­urnar rétt­læt­an­legar? Tveir læknar hafa tekið sér nærri 200 millj­óna arð frá hruni

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur boðað rót­tækar breyt­ingar á rekstr­ar­formi heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ætlar að banna arð­greiðslur út úr heilsu­gæslu­stöðv­unum. Tals­verðar arð­greiðslur hafa verið út úr þeim tveimur einka­reknu heilsu­gæslu­stöðvum, Sala­stöð­inni og Lág­múla­stöð­inni sem reknar hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nokkur einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki hafa greitt út háan arð á liðnum árum. Af hverju á að taka heilsu­gæslu­stöðv­arnar sér­stak­lega fyrir og banna eig­end­unum að taka út arð?

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár