Eiginmaður þingkonu farinn á hvalveiðar
FréttirHvalveiðar

Eig­in­maður þing­konu far­inn á hval­veiðar

Þröstur Sig­munds­son, eig­in­maður Silju Daggar Gunn­ars­dóttur þing­konu, er byrj­aður að veiða hrefnu á hval­veiði­bátnum Rokk­ar­anum sem hann keypti í fyrra. Kona hans sat í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins þar til í fyrra en kemur ekk­ert að rekstr­inum. Efna­hags­legar for­sendur hrefnu­veiða hafa ekki verið góðar á Íslandi hingað til, meðal ann­ars vegna lágs kjöt­verðs, en Þröstur hefur trú á veið­unum.
Banna hælisleitendum að tala við fjölmiðla til að „vernda friðhelgi einkalífs þeirra“
FréttirFjölmiðlabann Útlendingastofnunar

Banna hæl­is­leit­endum að tala við fjöl­miðla til að „vernda frið­helgi einka­lífs þeirra“

Útlend­inga­stofnun leggur blátt bann við við­tölum fjöl­miðla­fólks við flótta­fólk á heim­ilum þeirra. Regl­urnar eiga sér ekki stoð í almennum lögum en upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar vísar í ákvæði stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi einka­lífs og heim­ilis máli sínu til stuðn­ings. Hann þver­tekur fyrir að með þessu sé vegið að tján­ing­ar­frelsi íbúa. Verk­efna­stjóri hæl­is­sviðs hjá Útlend­inga­stofnun líkir við­tali þátta­stjórn­enda Hæpsins við hæl­is­leit­endur Arn­ar­holti við hús­brot.
Gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á samráði: Samráðsnefnd ekki með í ráðum
FréttirGjaldeyrishöft

Gagn­rýnir rík­is­stjórn­ina fyrir skort á sam­ráði: Sam­ráðs­nefnd ekki með í ráðum

Katrín Jak­obs­dóttir gagn­rýnir stjórn­ar­meiri­hlut­ann fyrir skort á sam­ráði við gerð aflandskrónu­frum­varps Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún segir ólík­legt að gjald­eyr­is­höft verði afnumin fyrir kosn­ingar í haust. „Stað­reyndin er sú að frum­varpið mun ekki aflétta höftum af íslenskum almenn­ingi, fyr­ir­tækjum og líf­eyr­is­sjóðum og enn liggur ekki fyrir hvenær það verður gert.“
Þrívíddarbíó dýrara fyrir þá sem nota gleraugu
Menning

Þrí­vídd­ar­bíó dýr­ara fyrir þá sem nota gler­augu

Það hefur færst í vöxt í Hollywood að taka upp og sýna kvik­myndir í þrí­vídd en því fylgir auk­inn kostn­aður fyrir þá bíó­gesti sem sækja slíkar sýn­ingar. Til þess að njóta kvik­myndar í þrí­vídd þarf sér­stök þrí­vídd­ar­gler­augu sem seld eru sér hér á landi. Fyrir þá sem nota gler­augu að stað­aldri getur reynst ansi dýrt að sækja slíkar sýn­ingar.
Reiðhjóli bæjarfulltrúans stolið: Lögreglan brýnir fyrir fólki að geyma þau innandyra
FréttirÞjófnaður

Reið­hjóli bæj­ar­full­trú­ans stolið: Lög­reglan brýnir fyrir fólki að geyma þau inn­an­dyra

Friðjón Ein­ars­son, bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, varð fyrir því óláni á föstu­dags­kvöldið að reið­hjóli hans var stolið. Nú þegar nær dregur sumri aukast þjófn­aðir af þessu tagi. Varð­stjóri hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, Bjarney Ann­els­dóttir segir þessa þjófn­aði nú eiga sér stað allan árs­ins hring en hennar reið­hjóli var stolið þar sem það stóð læst fyrir utan heim­ili hennar í fyrra.
Áhugavert gönguland í stórbrotinni eldfjallanáttúru
Fréttir

Áhuga­vert göngu­land í stór­brot­inni eld­fjall­a­nátt­úru

Krýsu­víkur- og Trölla­dyngju­svæðið á Reykja­nesskaga er vin­sælt meðal göngu­fólks og nátt­úru­unn­enda enda er þar að finna magn­aða eld­fjall­a­nátt­úru og lands­lag sem kemur á óvart. Af fjórum svæðum innan Reykj­ans­fólk­vangs er aðeins Trölla­dyngja eftir í bið­flokki ramma­á­ætl­unar. Hin þrjú hafa öll verið sett í orku­nýt­ing­ar­flokk, sam­kvæmt drögum að þriðja áfanga. Allt Krýsu­vík­ur­svæðið verður því virkjað sam­kvæmt því. Trölla­dyngju­svæðið, sem hér verður fjallað um, markar vest­ari mörk Reykja­nes­fólk­vangs.

Mest lesið undanfarið ár