Mynd: Óskar Ericsson

Egg villtra fugla

Óskar Ericsson sýnir hvernig best er að mat­reiða egg villtra fugla, sem hann segir þau bragð­bestu sem hægt er að fá.

Mat­ar­menn­ingin á Íslandi hefur batnað til muna síð­asta ára­tug eða svo. Þótt enn sé langt í land, er þó orðið ágæt­isúr­val af skemmti­legum og fram­andi mat­vörum í búðum. Þannig verður það að telj­ast áfanga­sigur að þurfa ekki lengur að gera sér ferð í sér­verslun til að kaupa alvöru haloumi-ost eða ekta salami-pylsu. Víðast hvar er nú prýðis úrval af græn­meti og kjöti, hægt er að fá líf­rænan kjúkling frá Litlu gulu hæn­unni og nauta­kjöt beint frá býli. Áhugi Íslend­inga á mat hefur vaxið og margir sætta sig ekki lengur við mat sem er fullur af rot­varn­ar­efnum og inni­heldur alls­konar e-númer sem eru óþörf. Auk þess hefur þjóðin orðið nýj­unga­gjarn­ari og óhrædd­ari við að prófa áður óþekktar teg­undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár