Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samningurinn hafi ekki verið borinn undir Alþingi
FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
Vefbannið mikla í Kasmír
Erlent

Vef­bannið mikla í Kasmír

Íbúar á yfir­ráða­svæði Indverja í Kasmír hafa verið úr öllum tengslum við umheim­inn síðan í byrjun ágúst þegar stjórn­völd lok­uðu fyrir inter­net­að­gang, stöðv­uðu sjón­varps­út­send­ingar, sendu inn fjölda her­sveita til að fram­fylgja útgöngu­banni og hand­tóku þús­undir stjórn­ar­and­stæð­inga. Aðskiln­að­ar­sinnar segja gróf mann­rétt­inda­brot eiga sér stað í þessu svart­holi upp­lýs­inga og kjarn­orku­veldið Pakistan gæti dreg­ist inn í átök vegna aðgerða Indverja.
Aðstoðarmaður Sigmundar réttlætir fullgildingu ECT-samningsins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræðuna“
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.
Valdatafl í Kaupfélaginu: Það sem ekki er sagt í Skagafirði
Fréttir

Valda­tafl í Kaup­fé­lag­inu: Það sem ekki er sagt í Skaga­firði

Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri í Skaga­firði, trónir á toppnum með meira en tvö­falt hærri tekjur en næst­tekju­hæsti Skag­firð­ing­ur­inn. Uppsögn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Hólm­fríði Sveins­dóttur hjá nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækj­unum Iceprotein og Protis, hefur vakið upp grun­semdir og óánægju með hvata kaup­fé­lags­stjór­ans. Við­mæl­endur Stund­ar­innar segja að við­hafn­ar­við­tal við Þórólf í Morg­un­blað­inu hafi verið birt til að lægja öld­urnar út af upp­sögn­inni og tryggja gott veður á aðal­fundi kaup­fé­lags­ins. „Það er þessi ofboðs­lega hræðsla við hann,“ segir við­mæl­andi Stund­ar­innar í Skaga­firði.
Stjórn Sigmundar fullgilti umdeildan samning um vernd orkufjárfestinga
FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið undanfarið ár