Börn forstjóra og bankamanna kenna ungu fólki að spara peninga

Myndband Lands­bank­ans um sparnað ungs fólks sætir gagn­rýni. „Við­mæl­end­urnir í mynd­band­inu eru ekki leik­endur heldur ungt fólk sem beðið var að tala út frá eigin reynslu,“ segir upp­lýs­inga­full­trúi.

Börn forstjóra og bankamanna kenna ungu fólki að spara peninga
Ungt fólk og pen­ingar Pétur Kiernan er and­lit her­ferð­ar­innar. Mynd: Landsbankinn

Við­mæl­endur í her­ferð Lands­bank­ans „Ungt fólk og pen­ingar“ eru margir hverjir börn for­stjóra, stjórn­enda úr fjár­mála­geir­anum og áhrifa­manna úr þjóð­fé­lag­inu. Markmið her­ferð­ar­innar er að skoða hvernig ungt fólk hugsar um pen­inga og sparnað.

Her­ferðin, sem unnin er í sam­starfi við aug­lýs­inga­stof­una Jónsson & Lemacks, sætti gagn­rýni í Frétta­blað­inu á dög­unum. Þar var bent á að Pétur Kiernan, áhrifa­valdur og and­lit her­ferð­ar­innar, væri með Audemars Piguet úr á hendi í mynd­bandi þar sem hann ræddi við ung­menni um sparnað. Slíkt úr kosti nýtt um 4 millj­ónir króna.

„Mig langar að spara en mér finnst ekki mjög spenn­andi að fylla út excel-skjöl með kalda núðlu­súpu í fang­inu,“ segir Pétur á vef Lands­bank­ans. „Ég vil líka geta lifað líf­inu.“

Pétur er nemi í fjár­mála­verk­fræði í Háskól­anum í Reykja­vík. Á sam­fé­lags­miðlum hefur hann gert kynn­ingar fyrir 66°Norður, Laugar Spa og Joe & the Juice. Faðir hans er Sigurður Hrafn Kiernan fjár­festir, sem áður var einn lyk­il­stjórn­enda Askar Capital og var með 104 millj­ónir króna í fjár­magnstekjur árið 2017. 

Við­mæl­endur Péturs í mynd­band­inu eru einnig margir hverjir börn stjórn­enda í atvinnu­líf­inu og fjár­mála­kerf­inu. Í mynd­band­inu ræða náms­menn­irnir um það hvernig þeim finn­ist skyn­sam­leg­ast að spara pen­inga. Eru nefnd ráð eins og að fara með dósir og flöskur í end­ur­vinnslu til að eiga efni á bíó­ferð. Segjast þau flest vera að spara fyrir kaupum á íbúð.

Stundin sendi Lands­bank­anum fyr­ir­spurn um hvort náms­menn­irnir væru ráðnir sem leik­arar og hvort bank­inn liti svo á að hópur við­mæl­enda í mynd­band­inu end­ur­spegl­aði reynslu­heim ungs fólks þegar kemur að fjár­málum.

„Við­mæl­end­urnir í mynd­band­inu eru ekki leik­endur heldur ungt fólk sem beðið var að tala út frá eigin reynslu,“ svarar Rúnar Pálmason, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans. „Lands­bank­inn býr ekki yfir upp­lýs­ingum um stöðu og fjár­hag for­eldra þeirra sem koma fram í við­töl­unum.“

Nokkur umræða hefur orðið um her­ferð­ina á sam­fé­lags­miðlum. „Mér er sama hvað ein­hver leik­ari í aug­lýs­ingu fyrir banka er með dýrt úr,“ segir Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson, vara­for­maður Ungra jafn­að­ar­manna, á Twitter.

„Eru áhrifa­valdar leik­arar?“ spyr þá Hrafn Jónsson pistla­höf­undur. „Þeir koma fram undir eigin nafni og ímynd, en eru aug­ljós­lega að pres­entera mjög skekkta mynd af ein­hvers­konar veru­leika á þeim for­sendum að selja.“

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs Íslands, bregst einnig við frétt Frétta­blaðs­ins á Twitter og telur skila­boð Lands­bank­ans til ungs fólks af hinu góða.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár