Bóluefni gegn klamydíu loks prófað á mannfólki

Vís­inda­menn hafa reynt að búa til bólu­efni gegn klamydíu í yfir 50 ár. Nú hefur mik­il­vægt skref verið stigið.

Nánd
Nánd Klamydía smit­ast með óvörðu kyn­lífi. Mynd: Shutterstock

Klamydía er algengur kyn­sjúk­dómur sem í sumum til­fellum getur haft alvar­legar afleið­ingar á frjó­semi kvenna sem smit­ast af honum. Til­raunir til að búa til bólefni gegn klamydíu hafa fram að þessu ekki skilað árangri. Klínískar próf­anir á nýju bólu­efni gegn sjúk­dómnum vekja þó vonir um að bólu­efni gæti orðið til áður en langt um líður. 

Smitaðir gjarnan einkennalausir

Það er bakt­er­ían Chlamydia trachomatis sem veldur klamydíu og er sjúk­dóm­ur­inn algeng­asti kyn­sjúk­dómur af völdum bakt­eríu í heim­inum. Sjúk­dóm­ur­inn berst á milli ein­stak­linga við kyn­mök í leggöngum og enda­þarmi sem og með munn­mökum. Að auki getur sýk­ingin borist í barn við fæð­ingu. Hægt er að með­höndla sýk­ingu af völdum bakt­er­í­unnar á ein­faldan hátt með sýkla­lyfjum.  

Einn vand­inn sem fylgir klamydíu­sýk­ingu er sá að flestir sem smit­ast af bakt­er­í­unni eru ein­kenna­lausir. Auk þess getur ein­stak­lingur fengið klamydíu oftar en einu sinni smit­ist hann af bakt­er­í­unni á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár