Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis kannar mál skrifstofustjórans
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis kannar mál skrif­stofu­stjór­ans

Andrés Ingi Jónsson þing­maður er hvata­maður að skoðun á laga­birt­ingum og afskiptum ráðu­neyta af þeim. Hann spyr þeirrar spurn­ingar hvort Alþingi, lög­gjaf­inn, eigi ekki að sjá um birt­ingu laga en ekki fram­kvæmda­valdið, ráðu­neytin í land­inu. Hann hefur farið fram á að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fái upp­lýs­ingar um mál Jóhanns Guð­munds­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, sem lét fresta birt­ingu laga um fisk­eldi.
Steingrímur: Ekki Alþingis að svara til um  inngrip skrifstofustjórans við birtingu laga um laxeldi
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Stein­grímur: Ekki Alþingis að svara til um inn­grip skrif­stofu­stjór­ans við birt­ingu laga um lax­eldi

Stein­grímur J. Sig­fús­son segir að það sé fram­kvæmda­valds­ins að taka við nýjum lögum fra Alþingi og birta þau. Hann segir að það sé ekki Alþingis að tjá sig um mál Jóhanns Guð­munds­sonar sem hringdi í Sjtórn­ar­tíð­indi úr atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu og lét fresta birt­ingu laga um fisk­eldi.
KPMG: „Það var ákvörðun Samherja  að skipta um endurskoðunarfyrirtæki“
FréttirSamherjaskjölin

KPMG: „Það var ákvörðun Samherja að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki“

KPMG segir trúnað ríkja um við­skipta­vini félags­ins en að Samherji hafi ákveðið að skipta um end­ur­skoð­anda. Fyr­ir­tækið sem Samherji skiptir nú við, BDO ehf., er með stutta við­skipta­sögu á Íslandi. Spænska BDO hefur verið sektað og end­ur­skoð­andi þess dæmdur í fang­elsi á Spáni fyrir að falsa bók­hald útgerð­ar­innar Pescanova sem meðal ann­ars veiðir í Namibíu.
Útlendingastofnun kom í veg fyrir veitingu ríkisborgararéttar
Fréttir

Útlend­inga­stofnun kom í veg fyrir veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar

Útlend­inga­stofnun braut árum saman á erlendri konu með því að stað­festa ekki að hún mætti dvelj­ast á Íslandi án sér­staks dval­ar­leyfis. Konan fékk af þeim sökum ekki rík­is­borg­ara­rétt fyrr en rúmum tveimur árum eftir að hún átti rétt þar á. Stofn­unin sótti þá fjár­hags­upp­lýs­ingar maka kon­unnar úr kerfum Rík­is­skatts­stjóra án þess að hann veitti heim­ild fyrir því eða væri upp­lýstur um það.

Mest lesið undanfarið ár