Studdi tillögu gegn falsfréttum erlendis en ekki hér heima
Fréttir

Studdi til­lögu gegn fals­fréttum erlendis en ekki hér heima

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, stendur ekki að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um bar­áttu gegn upp­lýs­inga­óreiðu, en sam­þykkti þó sams konar til­lögu í nefnd Norð­ur­landa­ráðs í sept­em­ber. Hún segir ekki til­efni til að breyta umhverf­inu á grund­velli fals­frétta sem dreift var í Brexit-kosn­ing­unum og þegar Trump var kjör­inn 2016.
Tveir einstaklingar á mínútu
Mynd dagsins

Tveir ein­stak­lingar á mín­útu

Í heim­inum deyja tveir ein­stak­lingar á mín­útu í umferð­ar­slysum, það gera 3.700 á sól­ar­hring eða 1,3 millj­ónir á ári. Fyrsta banaslysið í umferð­inni hér heima varð 25. ágúst 1915. Guð­mundur Ólafsson, 9 ára drengur, hljóp úr Veltu­sundi í veg fyrir reið­hjól í Aust­ur­stæti og lést af höf­uð­höggi sem hann hlaut. Fyrsta fórn­ar­lamb bíl­væð­ingar var Ólöf Margrét Helga­dóttir, en hún gekk í veg fyrir bif­reið á gatna­mótum Banka­strætis og Ing­ólfs­strætis þann 29. júní 1919. Síðan þá hafa 1.583 lát­ist í umferð­inni á Íslandi. Á heims­vísu stöndum við okkur vel, sam­kvæmt með­al­tals­tölum síð­ustu þriggja ára frá WHO eru 167 þjóð­ríki sem hafa hærra hlut­fall dauðs­falla en við. En hér lát­ast að með­al­tali 3,3 ein­stak­lingar árlega, á hverja 100 þús­und íbúa. Svíar standa sig best, með 2,3 á hverja 100 þús­und. Í Zimbabwe er hlut­fallið hæst, með 61,9 á hverja 100 þús­und íbúa.
„Meðvirkni minni er lokið“
Mynd dagsins

„Með­virkni minni er lokið“

„Nú er svo komið að með­virkni minni er lokið,“ skrif­aði Brynjar Níelsson á föstu­dag­inn, og að... „alræði sótt­varna hér á landi hefur sýnt sig að vera óskil­virkt. Þær aðgerðir sem ráð­ist hefur verið í eru ekki að skila þeim árangri sem að er stefnt og athygli ráða­manna hefur dreifst um víðan völl.“ Sammála Brynjari? Nei... við erum á réttri leið. Það sést best á því að þegar ég hitti hæst­virtan annan vara­for­seta Alþingis niður á þingi í morgun, var verið að til­kynna á blaða­manna­fundi þrí­eyk­is­ins að ein­ungis níu smit hefðu greinst hér síð­asta sól­ar­hring­inn. Árangur sem að mestu má að þakka því að við erum öll í þessu saman og förum í einu og öllu eftir til­mælum sótt­varna­læknis. Sem er auð­vitað frá­bært.
Veitingamenn skoða málsókn á hendur ríkinu
FréttirCovid-19

Veit­inga­menn skoða mál­sókn á hendur rík­inu

Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði hafa fengið lög­menn til að kanna mögu­leika á að sækja bætur á hendur hinu opin­bera vegna tak­mark­ana á rekstri þeirra í tengslum við sótt­varnir. Þær tak­mark­anir segja veit­inga­menn að séu ígildi lok­unar en án þess að bætur komi fyrir. „Grein­inni er í raun bara að blæða út,“ segir Jóhann Örn Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Gleðip­inna.
Félag Þorsteins Más lánaði börnum hans 29 milljarða til að kaupa hlut þess í Samherja
FréttirSamherjaskjölin

Félag Þor­steins Más lán­aði börnum hans 29 millj­arða til að kaupa hlut þess í Samherja

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn, í eigu Þor­steins Má Bald­vins­sonar og Helgu S. Guð­munds­dóttir, lán­aði félagi í eigu barna þeirra, Baldvins og Kötlu, 29 millj­arða króna til að kaupa hluta­bréf í Samherja af þeim í fyrra. Félag Baldvins og Kötlu greiðir rúmar 1100 millj­ónir króna á ári í afborg­anir af lán­inu.
Leita svara vegna dularfulls andláts í Mosfellsbæ
Fréttir

Leita svara vegna dul­ar­fulls and­láts í Mos­fellsbæ

Mariuszi Robak var lýst sem lífs­glöðum og and­lega stöð­ugum ungum manni sem elskaði fjöl­skyld­una sína, vini og Ísland. Það kom því öllum á óvart þegar hann tók svipti sig lífi síð­ast­liðið sumar. Bróðir hans og besti vinur hafa báðir efa­semdir um að Mario, eins og hann var kall­aður, hafi lát­ist án þess að utan­að­kom­andi aðilar hafi haft þar áhrif á. „Eina skýr­ingin sem ég sé er að hann hafi gert það vegna þess að hann ótt­að­ist um vini sína eða fjöl­skyldu.“
Dómkirkja Krists konungs
Mynd dagsins

Dóm­kirkja Krists kon­ungs

Dóm­kirkja Krists kon­ungs, Landakot eins og hún heitir fullu nafni var teiknuð af Guðjóni Sam­ú­els­syni og vígð árið 1929. Kirkjan var reist á jörð kots­ins, Landa­kots sem Kaþólska kirkjan keypti árið 1864, og lá þá í útjaðri Reykja­víkur. Á jörð­inni var líka líka reistur spít­ali árið 1902 af St. Jós­efs­systrum, sá fyrsti á land­inu. Alþingi veitti systr­unum ekki krónu til verks­ins, þótt það hafi bráð­vantað spít­ala í landið.  Árið 1963 var síðan núver­andi spít­ali tek­inn í notkun. Íslenska ríkið keypti Landa­kots­spít­ala þrettán árum síðar og er hann nú hluti af Land­spít­ala­bákn­inu. Á mynd­inni má sjá Gróttu­vita á Sel­tjarn­ar­nesi í fjarska. Vitinn var byggður árið 1947 og tók við af vita sem var reistur árið 1897. Linsan úr þeim vita var færð yfir í þann nýja og er enn í notkun, 123 árum síðar.

Mest lesið undanfarið ár