Glæsilegt hjá Grænlendingum
Mynd dagsins

Glæsi­legt hjá Græn­lend­ingum

Ferða­menn sem koma hingað frá Græn­landi eru nú, einir þjóða, und­an­þegnir aðgerðum á landa­mærum og þurfa því hvorki að fara í skimun, sótt­kví eða fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi. „Það hefur gengið vel, ein­ungis 30 Covid-19 smit verið í öllu land­inu." segir Jacob Isbos­eth­sen (mynd) sendi­herra Græn­lands á Íslandi. Ef jafn­margir hefðu smit­ast hér og og á Græn­landi hefðu 195 manns fengið Covid-19. Í morgun var talan örlítið hærri, 6049 ein­stak­lingar hafa fengið far­sótt­ina hér heima.
Þorsteinn Már og Helga skulduðu fyrirtækjum Samherja í Belís og Kýpur milljónir án gjalddaga
FréttirHeimavígi Samherja

Þor­steinn Már og Helga skuld­uðu fyr­ir­tækjum Samherja í Belís og Kýpur millj­ónir án gjald­daga

Árs­reikn­ingar félaga Samherja á Kýpur sýna inn­byrðis við­skipti við Þorstein Má Bald­vins­son og Helgu Stein­unni Guð­munds­dóttur. Þau voru sektuð vegna brota á gjald­eyr­is­hafta­lög­unum eftir hrunið vegna milli­færslna inn á reikn­inga þeirra en þær sektir voru svo aft­ur­kall­aðar vegna mis­taka við setn­ingu lag­anna.
Allir á tánum
Mynd dagsins

Allir á tánum

Það var mikið um að vera við veg 42, vestan Kleif­ar­vatns nú í morgun. Vega­gerðin var að kanna aðstæður, starfs­menn á Jarð­vá­rsviði Veð­ur­stofu Íslands (mynd) voru að mæla gas á hvera­svæð­inu í Seltúni, sem og grjót­hrun. Þarna voru líka ferða­langar að von­ast eftir hinum stóra, kvik­mynda­gerð­ar­maður að festa augna­blik á filmu, enda höfðu mælst yfir 1000 jarð­skjálftar á svæð­inu fyrstu tíu tím­ana í dag. Þar af tveir yfir 3 að stærð, sá stærri átti upp­tök sín rétt norðan við Seltún, klukkan 03:26 í morgun.
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
FréttirSamherjaskjölin

Þor­steinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólög­mætar þá voru þær á ábyrgð Jóhann­esar Stef­áns­sonar“

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhann­esi Stef­áns­syni einum um ætl­aðar „óeðli­legar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútu­greiðslur frá Sam­herj­a­fé­lögum til „hákarl­anna“ svököll­uðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun
Fréttir

Horfði á sjón­varps­fréttir og fann sig knúna til að hefja und­ir­skrifta­söfnun

„Stórslys“, sem er í upp­sigl­ingu varð­andi heilsu íslenskra kvenna, er hvat­inn að und­ir­skrifta­söfn­un­inni „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“. Aðdrag­and­inn er að grein­ing leg­háls­sýna á að fara fram í Danmörku í stað Íslands. Erna Bjarna­dóttir, for­sprakki söfn­un­ar­innar, segir vanta upp á virð­ingu við not­endur krabba­meins­skim­ana.
Chelsea týnd í tuttugu tíma
Mynd dagsins

Chelsea týnd í tutt­ugu tíma

Þriggja mán­aða gamla tíkin Chelsea fannst föst í gjótu niðri við höfn eftir að hafa að hafa skroppið út í garð að pissa sl. laug­ar­dags­kvöld. „Það er ómet­an­legt að búa í svona bæ, eins og hér í Vogunum, þar sem hálfur bær­inn, ásamt Björg­un­ar­sveit­inni tók þátt í leit­inni,“ segir Viktoría Ólafs­dóttir eig­andi hvolps­ins. Viktoría segir Chelsea hafa tekið á rás í ofsa­hræðslu, eftir að tvær tertur voru sprengdar í nágrenn­inu og er þakk­lát fyrir að hún sé komin heim ósködduð. Chelsea leikur úti við Atlético Madrid í Meist­ara­deild­inni í kvöld, sig­ur­leik fyrir Chelsea í Vogunum.

Mest lesið undanfarið ár