Glæsilegt hjá Grænlendingum

Reykjavík · 26/02/2021 · 10:45 · 35mm
Reykjavík · 26/02/2021 · 10:45 · 35mm
Ferðamenn sem koma hingað frá Grænlandi eru nú, einir þjóða, undanþegnir aðgerðum á landamærum og þurfa því hvorki að fara í skimun, sóttkví eða framvísa neikvæðu PCR-prófi. „Það hefur gengið vel, einungis 30 Covid-19 smit verið í öllu landinu." segir Jacob Isbosethsen (mynd) sendiherra Grænlands á Íslandi. Ef jafnmargir hefðu smitast hér og og á Grænlandi hefðu 195 manns fengið Covid-19. Í morgun var talan örlítið hærri, 6049 einstaklingar hafa fengið farsóttina hér heima.
Mynd: Páll Stefánsson

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mynd dagsins

Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Vaddúddí, vaddúddí

Jaðrakan segir víst vaddúddí, vaddúddí, en stofn­stærðin á þessum votlendis­fugli er um 70 þúsund varppör. Krían (seinni mynd) er þrisvar sinnum fjölmennari, en hér verpa um 200 þúsund pör. Jaðrakan fer ekki ekki langt til vetursetu, bara til Írlands og suður til Fetla­fjarðar, sem heitir víst líka Biskajaflói eða Bizkaiako Golkoa á basknesku. Krían aftur á móti eyðir 5 mánuðum á ári í ferðalög, en það eru 35 þúsund kíló­metrar frá vetrar­stöðvunum við Suðurskauts­landið til Sand­gerðis þar sem þessi mynd var tekin í morgun.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Ella í Brákar­sundi, Borgarnesi

Trillan Ella, er vorboðinn í Borgarnesi. í aldar­fjórðung hefur hún glatt gesti og gangandi þar sem hún lónir í Brákeyjar­sundi vor og sumar. Ella var byggð í Stykkis­hólmi 1975, skírð eftir Snæfelskum kven­skörungi. Þaðan var hún keypt til Borgarnes af Stór­útgerðar­félagi Mýrar­manna - aðallega til að veiða borgfisk undir Þormóðs­skeri á sérstöku Bessa­leyfi. Núverandi eigandi, Sigurður Halldórsson, ætlar sér stærri hluti með Ellu... að breyta henni í samfélags­stjörnu. Fljótlega mun Ella því fá sérstaka Facebook og Instagram síðu.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Hjóla­þjófatíminn er núna

Þjófnaður reið­hjólum er nú í fullum gangi, vertíðin er frá miðjum apríl og fram í miðjan september að sögn Gunnars Rúnars Svein­bjarnar­sonar, upplýsinga­fulltrúa lögreglunnar. Hann sagði líka að fólk mætti vera duglegra að athuga hvort lögreglan hefði fundið hjólið. Hjól sem hafa verið í vörslu lögreglunar í yfir eitt ár fara á uppboð. Á uppboðinu í fyrra­sumar voru rúmlega hundrað hjól, öll seldust nema tvö barnahjól. Lögreglunni barst 551 tilkynning um hjóla­stuld í fyrra.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Góðleg gimbur í góða veðrinu

Sauðfé á Íslandi hefur fækkað um meira en helming frá því flest var árið 1977. Þá voru 896 þúsund fjár á vetrar­fóðrun en nú í vetur voru þau akkúrat 400 þúsund og hafa þau ekki verið færri síðan 1861. Af öllum þessum fjölda eru hrútarnir aðeins 11 þúsund - en það gera 37 rollur á hvern hrút. Fjöldi sauðfjár nú er litlu meiri en hann var árið 1760 en þá bjuggu hér 43 þúsund manns.
Mynd dagsins

Páll Stefánsson

Upp á punkt og prik

Í dag eru upp á dag tíu ár síðan Sviss­lend­ing­arnir Anthony og Claudia komu fyrst til Íslands og tjölduðu þessu þá nýja tjaldi á Tjald­svæðinu í Laugardal. Síðastliðin tvö ár hafa þau búið og starfað á Dalvík, en voru í stuttu stoppi í höfuð­borginni á leið suður og austur hringinn. Það var eitt annað tjald á tjald­svæðinu og tveir litlir húsbílar. Lífið er semsagt að færast í eðlilegt horf... ferðafólk á tjald­svæðinu og grímu­skyldan aflögð frá og með deginum í dag.

Mest lesið undanfarið ár