Keilir Miðja skjálfta­virkni seinni hluta dags­ins í dag hefur verið um þremur kíló­metrum suðsuð­vestan við fjallið Keili, sem er sýni­legt frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða mitt á mili Keilis og Fagra­dals­fjalls. Mynd: Shutterstock / Jóhann Helgason

Nýjasta sviðsmyndin fyrir eldgos gerir ráð fyrir mögulegu hraunflæði yfir Reykjanesbraut

Eld­fjalla­fræði- og nátt­úru­vá­r­hópur Háskóla Íslands hefur upp­fært spálíkan fyrir eld­gos á Reykja­nesi vegna breyttrar skjálfta­virkni í dag.

Eld­fjalla­fræði- og nátt­úru­vá­r­hópur Háskóla Íslands hefur gefið út nýtt sviðs­mynda­kort fyrir mögu­leg eld­gos á Reykja­nesi í yfir­stand­andi skjálfta­hr­inu.

Öflugir jarð­skjálftar hafa skekið Reykja­nesið og höf­uð­borg­ar­svæðið síð­asta sól­ar­hring, meðal ann­ars 5,2 að stærð klukkan 8 í morgun og 4,9 að stærð klukkan 22.38 í gær­kvöldi. Sá stærsti og tveir minni, 4,6 og 4,4 að stærð, ásamt fjölda smærri skjálfta, hafa í dag og í gær verið mældir milli fjalls­ins Keilis og Fagra­dals­fjalls. Skjálfta­miðjan er því nán­ast sýni­leg frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, aðeins um þremur kíló­metrum handan Keilis. Nýtt spá­kort fyrir mögu­legt eld­gos stað­setur hugs­an­legar og lík­leg­astar gos­s­töðvar í kringum það svæði. Ekki eru þó merki um gos­óróa.

Sviðs­myndin frá því kvöldÁ mynd­inni frá eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópi Háskóla Íslands eru sýndir lík­legir far­vegir hraun­rennslis ef til eld­goss kemur á þeim svæðum sem nú telj­ast lík­leg­ust. Rauðari litur gefur til kynna aukin lík­indi.

Í Facebook-færslu frá hópnum segir að spáin sé mikið breytt eftir að skjálfta­virkni færð­ist til í dag. „Eins og áður látum við gjósa á allra lík­leg­ustu svæð­unum. Miðað við kortið frá fyrr í dag eru miklar breyt­ingar, eins og við mátti búast út frá spá­kort­inu. Nú er það fyrst og fremst mitt Reykja­nesið þar sem lík­leg­ast er að hraun flæði um. Eins og áður, því rauð­ari sem lit­ur­inn er því lík­legra er að hraun fari þar um á nes­inu.“

Eins og sviðs­myndin sýnir er gert ráð fyrir að hraun geti runnið yfir vegstæði Reykja­nes­braut­ar­innar og gæti því mögu­lega teppt umferð milli Reykja­víkur og Kefla­víkur. Einnig er gert ráð fyrir að Suð­ur­strand­ar­vegur geti orðið fyrir hraun­rennsli í nýj­ustu sviðs­mynd­inni. Áður hefur á sögu­legum tíma runnið hraun til sjávar úr eld­gosi á Reykja­nesi, bæði til norður að strönd­inni við Faxaflóa og til suð­urs.

Lík­leg­ustu eld­gosa­svæðinSamkvæmt upp­færðu lík­ani er lík­leg­ast að mögu­leg eld­gos geti átt sér stað á rauðu svæð­unum. Ólík­legri eru gos á gul­leitu svæð­unum. Byggð í Grinda­vík sést neðst til vinstri á mynd­inni en efst til sjást Njarðvík og svo Keflavík.

Fyrr í kvöld birti eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópur Háskóla Íslands nýja eld­gosa­spá. „Eftir hrin­urnar í dag breyt­ist elds­upp­komu­spáin. Miðað við skjálfta frá hádegi í gær fram til kl. 17 í dag er spáin sam­kvæmt mynd. Eins og áður eru það innan eldrauðu svæð­anna sem lík­leg­ast er að eld­gos verði. Miðað við fyrri póst okkar hefur orðið mikil breyt­ing á spá­kort­inu. Lík­leg­ustu svæðin eru komin að Trölla­dyngju. Enn og aftur þá er spá­kortið byggt á und­ir­liggj­andi rann­sóknum á Reykja­nesi að við­bættum þeim atburðum er áttu sér stað í dag.“

Sem fyrr segir hefur ekki verið greint frá neinum gos­óróa í tengslum við skjálfta­hrin­una, sem orsakast af snið­gengum fleka­hreyf­ingum Amer­íkufleka til vest­urs og Evr­asíufleka til aust­urs. Meðal þeirra sem hafa varað við því að skjálfta­virknin og fyrra land­ris kunni að vera fyr­ir­boði eld­goss eru Ari Trausti Guð­munds­son, jarð­fræð­ingur og þing­maður. Ómögu­legt er að segja til um lík­indi á jarð­hrær­ingum vegna eða sam­hliða skjálfta­hrin­unnar, enda engin for­dæmi fyrir eld­gosum á Reykja­nesi síð­ustu 780 árin. Þó hefur verið bent á að eld­gosa­hrinur eigi sér stað á svæð­inu á 800 til 1.000 ára fresti og því telj­ist þau tíma­bær á jarð­sögu­legum tíma­skala. Svo lengi sem eld­gos á sér stað á þurru landi er lík­legt að gjósku­fall verði tak­markað.

Hættu­stig almanna­varna er í gildi á Reykja­nesi og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna skjálfta­hrin­unnar. Fólk er beðið að tryggja að lausir munir geti ekki fallið og orðið til lík­ams­tjóns og að forð­ast hlíðar þar sem grjót­hrun getur orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár