„Það verður ekkert eftir hér í sveitarfélaginu“
FréttirLaxeldi

„Það verður ekk­ert eftir hér í sveit­ar­fé­lag­inu“

Slát­ur­skipið Norwegian Gannett kom til Tálkna­fjarðar og slátr­aði 500 tonnum af eld­is­laxi fyrir Arctic Fish. Laxinn var fluttur beint úr landi og á markað í Evrópu sem þýðir að sveit­ar­fé­lög á Vest­fjörðum verða af afla­gjöldum, hafn­ar­gjöldum og óbeinum störfum við að vinna lax­inn. Rebekka Hilm­ars­dóttir, bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar, er ósátt við þessa notkun á slát­ur­skip­inu.
Aukin sjálfvirknivæðing og stórverslanir hagnast: „Óvæntur hlutur á pokasvæði“
Fréttir

Aukin sjálf­virkni­væð­ing og stór­versl­anir hagn­ast: „Óvæntur hlutur á poka­svæði“

Stór­versl­anir högn­uð­ust veru­lega á síð­asta ári sam­hliða auk­inni sjálf­virkni­væð­ingu. Á sama tíma hefur störfum ekki fækkað og laun hækkað, meðal ann­ars vegna kjara­samn­ings­bund­inna hækk­ana og heims­far­ald­urs. Formaður VR segir ein­boðið að störfum muni fækka en það þurfi ekki að vera nei­kvætt ef ávinn­ingi verði skipt jafnt milli versl­unar og starfs­fólks.
Icelandair gat þess aldrei að félagið stundaði viðskipti í gegnum Tortólu
FréttirPandóruskjölin

Icelandair gat þess aldrei að félagið stund­aði við­skipti í gegnum Tortólu

Flug­fé­lagið Icelandair lét þess aldrei getið opin­ber­lega að félagið hefði fjár­fest í þremur Boeing-þotum í gegnum Tortóla-félag. Við­skipti félags­ins í gegnum Tortólu komu fram í Pand­ópru­skjöl­unum. Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir að hlutur Icelandair í félög­unum sem héldu utan um þot­urnar hafi verið seldur með tapi.
Ráðherrar aðgerðarlitlir frá kosningum
Fréttir

Ráð­herrar aðgerð­ar­litlir frá kosn­ingum

Mikill munur er á fram­göngu ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar eftir alþing­is­kosn­ingar og því sem var fyrir kosn­ingar. Fátt er um útgjalda­vekj­andi eða stefnu­mót­andi aðgerðir. Á síð­ustu vik­unum fyrir kosn­ingar veittu ráð­herrar millj­ónir á millj­ónir ofan í aðskilin verk­efni auk þess sem ýmsar aðgerðir þeirra leiddu af sér skuld­bind­ingar til langs tíma.
Fjölskyldan missti af vélinni til Íslands og er í felum í Kabúl
Fréttir

Fjöl­skyldan missti af vél­inni til Íslands og er í felum í Kabúl

Hjón ásamt tveimur ungum börnum sínum sem ekki komust að flug­vél­inni sem átti að flytja fjöl­skyld­una frá Afganistan til Íslands í lok ágúst, nokkrum dögum eftir að Talí­banar tóku völdin í Kabúl, hafa að mestu verið í felum síðan. Konan segir í sam­tali við Stundina að hún hafi ótt­ast um líf barna sinna í mann­mergð­inni á flug­vell­inum og þurft að taka ákvörðun upp á líf og dauða þennan dag. Hún er læknir sem bjó á Íslandi fyrir rúmum ára­tug og segir ástandið í Kabúl verra en orð fái lýst, örvænt­ingin sé alls­ráð­andi.

Mest lesið undanfarið ár