Nýja ríkisstjórnin: Umhverfismálin færast frá Vinstri grænum til Sjálfstæðisflokks
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Nýja rík­is­stjórnin: Umhverf­is­málin fær­ast frá Vinstri grænum til Sjálf­stæð­is­flokks

Menn­ing­ar­mál og við­skipti fara í sama ráðu­neyti, og mennta­málin klofna í tvö ráðu­neyti. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son úr Sjálf­stæð­is­flokki verður umhverf­is­ráð­herra í stað Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar úr Vinstri grænum. Orku­málin verða færð undir umhverf­is­ráð­herra.
Bjarni taldi eðlilegt að vafi um framkvæmd kosninga ylli ógildingu 2011
Fréttir

Bjarni taldi eðli­legt að vafi um fram­kvæmd kosn­inga ylli ógild­ingu 2011

Bjarni Bene­dikts­son var harð­orður í umræðum um ógild­ingu kosn­inga til stjórn­laga­þings árið 2011. Meðal ann­ars sagði hann það að „ef menn fá ekki að fylgj­ast með taln­ingu atkvæða“ ætti það að leiða til ógild­ingar. Bjarni greiddi hins vegar í gær atkvæði með því að úrslit kosn­inga í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum ættu að standa, þrátt fyrir fjöl­marga ann­marka á fram­kvæmd­inni.
Börn þolendur í 61 prósent allra skráðra kynferðisbrota
Fréttir

Börn þolendur í 61 pró­sent allra skráðra kyn­ferð­is­brota

Lögreglu á Íslandi hafa aldrei borist fleiri til­kynn­ingar um barn­a­níð en fyrstu 10 mán­uði þessa árs þegar til­kynnt var um 36 mál sem flokk­ast undir barn­a­níð. Þá fjölg­aði einnig til­kynn­ingum til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot gegn börnum. Rann­sóknir hafa sýnt að til­kynn­ingar til lög­reglu um kyn­ferð­is­brot end­ur­spegli ekki raun­veru­legan fjölda brota, þau séu mun fleiri.
Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Jón Steinar ósáttur við umræðuna: „Ég hef algjöra fyrirlitningu á kynferðisbrotum“
Fréttir

Jón Steinar ósáttur við umræð­una: „Ég hef algjöra fyr­ir­litn­ingu á kyn­ferð­is­brotum“

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi Hæsta­rétt­ar­dóm­ari, er mjög ósáttur við við­brögð fólks við skrifum hans um að konur ættu að draga úr drykkju í því skyni að forð­ast nauðg­anir. Honum þykir hann órétti beittur með því að vera sagður sér­stakur varð­maður kyn­ferð­is­brota­manna í athuga­semda­kerfum.
Fyrrverandi hæstaréttardómari ráðleggur konum að drekka minna til að forðast nauðganir
Fréttir

Fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari ráð­leggur konum að drekka minna til að forð­ast nauðg­anir

Jón Steinar Gunn­laugs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður segir að áfengis- og vímu­efna­notkun sé ástæða lang­flestra kyn­ferð­is­brota. Eigi það við um bæði brota­menn og brota­þola, sem Jón Steinar segir að hvorir tveggja upp­lifi „dap­ur­lega lífs­reynslu“. Stígamót leggja áherslu á ekk­ert rétt­lætir naugun og að nauð­gari er einn ábyrgur gerða sinna. Í rann­sókn á dómum Hæsta­réttar í nauðg­un­ar­málum kom fram að greina megi það við­horf í dómum rétt­ar­ins að „réttur karla sé verð­mæt­ari en réttur kvenna“.
Lýsir alvarlegum afleiðingum þess að hafa verið áreitt af lækni á Landspítalanum
Fréttir

Lýsir alvar­legum afleið­ingum þess að hafa verið áreitt af lækni á Land­spít­al­anum

Kona sem til­kynnti Björn Loga Þór­ar­ins­son, sér­fræði­lækni á Land­spít­al­anum, form­lega í febr­úar vegna áreitni sem staðið hefur yfir frá því hún var lækna­nemi, segir spít­al­annn hafa brugð­ist sér. Björn var ekki sendur í leyfi á meðan málið var til með­ferðar innan spít­al­ans og honum var ekki veitt áminn­ing né vikið úr starfi eftir að spít­al­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði kyn­ferð­is­lega áreitt hana. „Það kom fyrir að það leið yfir mig í vinn­unni og ég grét mikið á kvöldin yfir því að þurfa fara í vinn­una dag­inn eftir,“ segir hún.
Forstjóri Festar: „Hiti“ á fyrirtækinu vegna máls sem stjórnarformaðurinn er sagður tengjast
Fréttir

For­stjóri Festar: „Hiti“ á fyr­ir­tæk­inu vegna máls sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn er sagður tengj­ast

For­stjóri Festar, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, segir að almenn­ings­hluta­fé­lag­inu hafi borist óform­leg erindi vegna máls sem stjórn­ar­for­maður félags­ins, Þórður Már Jóhann­es­son, hefur verið sagður tengj­ast. Eggert vill ekki gefa upp hvort og þá með hvaða hætti umrætt mál hefur verið rætt í stjórn Festar eða milli ein­stakra stjórn­ar­manna.
Sólveig Anna fullyrðir að nýr varaforseti ASÍ verði „einn af dyggustu liðsmönnum gömlu verkalýðshreyfingarinnar“
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna full­yrðir að nýr vara­for­seti ASÍ verði „einn af dygg­ustu liðs­mönnum gömlu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar og fyrr­ver­andi vara­for­seti ASÍ, segir að næsti vara­for­seti verði Halldóra Sveins­dóttir. Með skipun Halldóru muni á ný hefj­ast vinna við að koma SALEK-sam­komu­lag­inu á kopp­inn og „taka alla lýð­ræð­is­lega stjórn kjara­mála úr höndum launa­fólks sjálfs“.

Mest lesið undanfarið ár