Valdið að verki í réttarhöldunum yfir Julian Assange

Stundin fylgd­ist með rétt­ar­höld­unum yfir Julian Assange, sem Banda­ríkin hafa hund­elt vegna upp­ljóstrana hans á leynd­ar­málum rík­is­ins.

Valdið að verki í réttarhöldunum yfir Julian Assange
Vill frelsa mann­inn sinn Stela Moris, kona Julians Assange, var þreytu­leg eftir tveggja daga rétt­ar­höld. Mynd: AFP

Árið 2010 birti RÚV mynd­band sem sam­tökin WikiLeaks komust yfir og láku til fjöl­miðla. Mynd­bandið sýnir banda­ríska her­menn í árás­ar­þyrlum skjóta óvopn­aða borg­ara í Bagdad í júní 2007. Síðan er ráð­ist á sak­laust fólk í bíl sem reyndi að hjálpa þeim sem höfðu særst í árásinni. Meðal þeirra ell­efu sem féllu í árásinni voru blaða­maður og ljós­mynd­ari frá Reuters-frétta­stof­unni. Mynd­bandið var ekki það eina sem WikiLeaks lak til fjöl­miðla, en alls birtu sam­tökin um 750 þús­und af öðrum skjölum sem inni­héldu banda­rísk hern­að­ar­leynd­ar­mál, meðal ann­ars gögn sem sýndu fram á frek­ari stríðs­glæpi og pynt­ingar. Þetta var bara byrj­unin hjá WikiLeaks, en sam­tökin hafa lekið millj­ónum skjala frá stofnun þeirra og hafa allir helstu fjöl­miðlar heims­ins birt fréttir úr þessum sömu skjölum.

Eltur og fangelsaður

Stofn­andi WikiLeaks er Julian Assange, en hann hefur verið hund­eltur af banda­rískum yfir­völdum eftir að hafa lekið gögnum sem hafa nið­ur­lægt banda­rísk yfir­völd og komið upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár