Stjórn Úrvinnslusjóðs og sendinefndin verði kölluð fyrir þingnefnd
FréttirPlastið fundið

Stjórn Úrvinnslu­sjóðs og sendi­nefndin verði kölluð fyrir þing­nefnd

„Mér finnst, enn sem komið er, þetta ekki líta vel út,“ segir Vil­hjálmur Árnason, for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis um íslenska plastið sem fannst í miklu magni í vöru­skemmu í Svíþjóð í fyrra og við­brögð sendi­nefndar og stjórnar Úrvinnslu­sjóðs við fréttum Stund­ar­innar af því. Vil­hjálmur hyggst óska eftir því að stjórn Úrvinnslu­sjóðs og nefndin sem fór í vett­vangs­ferð í vöru­skemm­una og skil­aði að því loknu skýrslu, komi fyrir nefnd­ina.
Heilsugæslan á „hálfu gasi“ fram á haust
Fréttir

Heilsu­gæslan á „hálfu gasi“ fram á haust

Dæmi eru um að fólk þurfi að bíða í þrjá mán­uði eftir að fá tíma hjá heim­il­is­lækni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ragn­heiður Ósk Erlends­dóttir fram­kvæmda­stjóri hjúkr­unar hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir ástandið í öllu heil­brigð­is­kerf­inu ill­við­ráð­an­legt yfir sum­ar­tím­ann og heilsu­gæslan sé því á „hálfu gasi“. Allri bráða­þjón­ustu sé sinnt. „Ef það eru vanda­mál sem geta beðið þá bíða þau,“ segir Ragn­heiður sem telur að þetta ástand geti varað fram á haust, hið minnsta.
Sterk viðbrögð við morðinu á japanska stjórnmálaleiðtoganum
Erlent

Sterk við­brögð við morð­inu á jap­anska stjórn­mála­leið­tog­anum

Japanska þjóðin er í áfalli eftir að Shinzo Abe, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og sá þaul­setn­asti í sögu lands­ins, var ráð­inn af dögum á kosn­inga­fundi með heima­gerðu skot­vopni. Slíkir glæpir eru nán­ast óþekktir í Japan vegna strangrar skot­vopna­lög­gjafar. Á meðan vara frétta­skýrendur við að upp­hefja emb­ætt­is­tíð hans, sem hafi verið umdeild, og kín­verskir net­verjar fagna morð­inu ákaft á sam­fé­lags­miðlum án þess að yfir­völd þar rit­skoði slík skila­boð.
 Flugið að ná sömu hæðum og fyrir heimsfaraldur:  Losun frá flugi fjórfaldast milli ára á Íslandi
Fréttir

Flugið að ná sömu hæðum og fyrir heims­far­aldur: Losun frá flugi fjór­fald­ast milli ára á Íslandi

Flugið er að ná sér eftir sam­drátt­inn sem varð í heims­far­aldr­inum segir alþjóða­flug­mála­stofn­unin. Stofn­unin segir að fullum „bata“ verði náð eftir tvö ár og að óbreyttu verði met slegið í far­þega­flugi árið 2025. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna flug­rekst­urs fjór­fald­að­ist á milli áranna 2021 og 2022 á Íslandi ef miðað er við fyrsta árs­fjórð­ung.
Galnar útlitskröfur í ameríska poppheiminum
Fréttir

Galnar útlits­kröfur í amer­íska popp­heim­inum

Klara Elí­as­dóttir tón­list­ar­kona segir að útlits­kröfur sem gerðar voru til hennar þegar frægð­ar­sól hljóm­sveit­ar­innar The Charlies reis sem hæst í Banda­ríkj­unum hafi verið galnar. Þær hafi valdið henni mik­illi van­líðan og hún hafi verið mörg ár að ná fyrri styrk. Hún seg­ist ást­fangin af Íslandi eftir að hafa búið í 11 ár í Banda­ríkj­unum og er afar stolt af því að vera önnur konan í sög­unni til að semja þjóð­há­tíð­ar­lag en samin hafa verið lög sér­stak­lega fyrir þjóð­há­tíð í Eyjum í 89 ár.
Vigdís Hauksdóttir og hópur fyrrverandi bæjarstjóra vilja bæjarstjórastólinn í Hveragerði
Fréttir

Vigdís Hauks­dóttir og hópur fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra vilja bæj­ar­stjóra­stól­inn í Hvera­gerði

Vigdís Hauks­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, Karl Gauti Hjalta­son, fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins, og þrír fyrr­ver­andi bæj­ar­stjórar sem misstu stöður sínar eftir síð­ustu kosn­ingar vilja bæj­ar­stjóra­stól­inn í Hvera­gerði. Nýr meiri­hluti í bænum ákvað að aug­lýsa stöð­una.
Fyrrverandi Samherjaforstjóri tilnefndur í stjórn Festar með vísan til „sterkr­ar sam­fé­lags­vit­und­ar“
Fréttir

Fyrr­ver­andi Sam­herja­for­stjóri til­nefndur í stjórn Festar með vísan til „sterkr­ar sam­fé­lags­vit­und­ar“

Björgólfur Jóhanns­son, sem leysti Þorstein Má Bald­vins­son af hólmi eftir upp­ljóstrun Sam­herj­a­skjal­anna, er einn þeirra sem er til­nefndur til að sitja í stjórn Festar. Vísað er til „sterkrar sam­fé­lags­vit­undar“ hans í umsögn til­nefn­ing­ar­nefndar fyr­ir­tæk­is­ins. Nefndin telur sið­ferði og sam­fé­lags­vit­und sér­stak­lega mik­il­væg nú.
Landið sem felur sannleikann bak við lás og slá
Fréttir

Landið sem felur sann­leik­ann bak við lás og slá

Amnesty International segir að þátta­skil hafi orðið í mann­rétt­inda­málum í Eritreu fyrir tutt­ugu árum þegar hópur stjórn­mála­manna og fjöl­miðla­fólks var fang­els­aður. Staða mann­rétt­inda hafi verið slæm en versnað til muna þegar yfir­völd réð­ust með þessum hætti gegn tján­ing­ar­frels­inu. Ekki er enn vitað um afdrif fólks­ins. Samson Habte, frétta­stjóri sem flúði Eritreu fyrir níu árum, segir að heima­landið feli sann­leik­ann bak við lás og slá.

Mest lesið undanfarið ár