Hluthafi í Festi vill að félagið heiti Sundrung

Sundrung hf verður nýtt nafn almenn­ings­hluta­fé­lags­ins Festi hf sam­kvæmt til­lögu sem liggur fyrir hlut­hafa­fundi félags­ins sem fram fer í næstu viku. Festi á og rekur meðal ann­ars Krónu­versl­an­irnar og N1. Styr hefur staðið um félagið, sem er að langstærstum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, eftir að for­stjór­anum var sagt upp störfum.

Hluthafi í Festi vill að félagið heiti Sundrung
Krónur í kass­ann Rekstur fyr­ir­tækja í eigu Festar, svo sem mat­vöru­versl­ana­keðj­unnar Krón­unnar, hefur skilað félag­inu tals­verðum hagn­aði und­an­farin ár. Fimm millj­arða hagn­aður var af sam­stæð­unni í fyrra. Mynd: Davíð Þór

Hluthafi í almenn­ings­hluta­fé­lag­inu Festi leggur til að nafni félags­ins verði Sundrung. Tillagan verður tekin fyrir á hlut­hafa­fundi félags­ins sem fram fer á fimmtu­dag í næstu viku. Talsverð átök hafa verið á milli hlut­hafa en Festi er að langstærstum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, eða um 73 pró­sent. Ekki kemur fram í dag­skrá hlut­hafa­fund­ar­ins hvaða hlut­hafi leggur nafna­breyt­ing­una til. 

Fram kom í skýrslu til­nefn­ing­ar­nefndar Festar, sem gerði til­lögur um stjórn­ar­fólk í félag­inu, að ekki hafi tek­ist að finna mála­miðlun um stjórn sem tæki til­lit til sjón­ar­miða flestra hlut­hafa. „Þegar grannt var skoðað mátti sjá að áherslur í hópi hlut­hafa, bæði líf­eyr­is­sjóða og einka­fjár­festa, stöng­uð­ust svo mjög á að slík lend­ing væri óraun­hæf. Þá er lausnin ein­fald­lega opin kosn­ing á hlut­hafa­fundi með sínum kostum og göllum,“ segir í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gauti Bergmann Víðisson skrifaði
    Sundrung no kvk ORÐHLUTAR: sundr-ung
    ósamkomulag, ósætti
    DÆMI: það kom upp sundrung í stjórnmálaflokknum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu