Þungaða konan komin til Albaníu eftir 19 tíma ferðalag

Læknir Kvenna­deildar Land­spít­al­ans skrif­aði upp á vott­orð þar sem hann mælti gegn löngu flugi.

Þungaða konan komin til Albaníu eftir 19 tíma ferðalag
Á lög­reglu­stöð­inni Samtökin No Borders birtu þessa mynd rétt eftir mið­nætti í nótt en þar má sjá hinn tveggja ára albanska dreng á lög­reglu­stöð í heima­land­inu.

Albanska fjöl­skyldan sem var send úr landi í gær­morgun er komin til Albaníu eftir nítján klukku­stunda ferða­lag. Þau voru á lög­reglu­stöð í heima­land­inu þegar Stundin náði tali af þeim og sögð­ust örþreytt eftir ferða­lagið. Líkt og Stundin greindi frá í gær þá milli­lentu þau í Berlín í Þýska­landi um hádeg­is­bil í gær. Eftir nokk­urra klukku­stunda bið lá leiðin til Vín­ar­borgar í Aust­ur­ríki, þaðan sem þeim var loks flogið til Albaníu.

Öllum reglum fylgtÞor­steinn Gunn­ars­son, starf­andi for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar sagði í Kast­ljósi í kvöld að öllum settum reglum hefði verið fylgt þegar kon­unni var vísað úr landi.

Konan, sem er gengin 36 vikur á leið, maður hennar og dveggja ára drengur, voru öll stödd á lög­reglu­stöð í Albaníu þegar Stundin náði tali af þeim. Þau höfðu þá verið á ferða­lagi í nítján stundir og lítið sem ekk­ert sofið nótt­ina á undan.

Í vott­orði frá Kvenna­deild Land­spít­al­ans frá því í fyrr­inótt kemur fram að konan sé slæm af stoð­kerf­is­verkjum „og ætti erfitt með langt flug.“ Útlend­inga­stofnun hefur gefið út að konan hafi verið ferða­fær.

Vottorðið breyti engu

„Þegar við lásum yfir þetta vott­orð í morgun þá fannst okkur það ein­fald­lega benda á að það væri erfitt að fara í langt flug og það er ekk­ert, eins og við lásum út úr því, og erum sam­mála mati starfs­manni í nótt, að það eitt og sér hefði ekki átt að leiða til þess að það væri hætt við fram­kvæmd­ina,“ sagði Þor­steinn Gunn­ars­son, starf­andi for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar í Kast­ljósi í gær­kvöldi.

„Þegar við lásum yfir þetta vott­orð í morgun þá fannst okkur það ein­fald­lega benda á að það væri erfitt að fara í langt flug“

Þá sagði hann að það hefði verið mat stoð­deildar Rík­is­lög­reglu­stjóra að umrætt vott­orð frá Kvenna­deild Land­spít­al­ans „breyti ekki fyrra mati þeirra“, sem byggði á vott­orði Kai Blöndal, trún­að­ar­læknis Útlend­inga­stofn­unar. Þor­steinn gat hins­vegar ekki svarað því hvort sá læknir hefði nokkru sinni fram­kvæmt lækn­is­skoðun á kon­unni, en full­yrt hefur verið að það hafi hann í raun aldrei gert.

Alvarlegt að ráðleggingum sé ekki fylgt

Sjón­ar­vottar hafa lýst því að kon­unni hafi verið mikið niðri fyrir í fyrr­inótt, hún hafi verið stressuð og þá hafi byrjað að blæða mikið úr nefi. Eva Jón­as­dóttir, starf­andi yfir­læknir fæð­inga­þjón­ustu Land­spít­al­ans, sagði í sam­tali við Stundina í gær að það væri óskyn­sam­legt að hunsa ráð­legg­ingar lækna.

“Það virð­ist vera að þarna var fylgt þeim almennu reglum sem þau hafa“

„Það er ein­hver ástæða fyrir því að gefið var út vott­orð hjá okkur og það er óskyn­sam­legt að fara ekki eftir þeim ráð­legg­ingum,“ sagði hún. „Það eru tvö líf í húfi þegar þung­aðar konur eru að fljúga og ef þeim er ráð­lagt að gera það ekki fylgir því ákveðin áhætta.”

Land­lækn­is­emb­ættið metur kon­una „í áhættu­hópi og mjög við­kvæmri stöðu“. Samkvæmt svörum emb­ætt­is­ins til Stund­ar­innar er það litið „alvar­legum augum“ að ráð­legg­ingum sér­fræð­inga Land­spít­al­ans hafi ekki verið hlýtt.

Ráðherra segir öllum reglum fylgt

Samkvæmt reglum Útlend­inga­stofnun fór eftir þeim reglum sem þau hafa, segir dóms­mála­ráð­herra.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, var spurð út í það í fréttum RÚV í gær­kvöldi hvort hún hefði verið í sam­bandi við Útlend­inga­stofnun vegna máls­ins og hvort hún væri sátt við þau svör sem hún hefði fengið þar. „Já, ég hef rætt við þau í dag og það virð­ist vera að þarna var fylgt þeim almennu reglum sem þau hafa,“ sagði ráð­herr­ann. 

Aðspurður um það í Kast­ljósi hvort stofn­un­inni gæti staðið að sam­bæri­legri brott­vísun á nýjan leik, þar sem kona væri komin þetta langt á leið sagði for­stjóri Útlend­inga­stofn­unar: „Já, eins og staðan er í dag, þá sjáum við því ekk­ert til fyr­ir­stöðu á meðan að það er ekk­ert sem að hrjáir við­kom­andi ein­stak­ling sem á undir. Þannig að ef  við­kom­andi er fær um að ferð­ast, þá er að okkar mati þá eðli­leg­ast að það sé þá farin ferðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár