Enn vanti sjálfstætt eftirlit með lögreglu

Þingmenn Pírata leggja til að stofnuð verði sér­stök eft­ir­lits­stofnun á vegum Alþingis sem hafi eft­ir­lit með störfum lög­reglu. Sak­sókn­ara­emb­ættin séu of tengd lög­reglu til að geta rann­sakað vinnu­brögð hennar með trú­verð­ugum hætti.

Enn vanti sjálfstætt eftirlit með lögreglu
Mælir fyrir til­lög­unni Helgi Hrafn Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður máls­ins. Mynd: Pressphotos.biz - (RosaBraga)

Raun­veru­lega sjálf­stætt eft­ir­lit með störfum lög­reglu skortir enn á Íslandi, enda hefur eft­ir­lits­nefndin sem sett var á fót með lögum árið 2016 hvorki heim­ildir né fjár­magn til rann­sókna og beit­ingu við­ur­laga. Þetta er mat þing­manna Pírata sem hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að stofnuð verði sér­stök eft­ir­lits­stofnun á vegum Alþingis sem hafi eft­ir­lit með lög­regl­unni. Þannig megi tryggja sjálf­stæði rann­sak­enda frá hand­höfum alls­herj­ar­valds. 

Að mati þing­mann­anna stenst eft­ir­lit með lög­reglu á Íslandi illa þær kröfur sem leiða af Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, enda hafi Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu lagt áherslu á að við rann­sóknir á vald­beit­ingu og rétt­mæti hennar þurfi rann­sókn­ar­að­ili að vera með öllu sjálf­stæður og ótengdur rann­sókn­ar­þola; dugi þá ekki að við­kom­andi sé aðskil­inn stjórn­sýslu­legu skipu­riti þeirrar greinar rík­is­valds­ins sem er til rann­sóknar heldur þurfi aðil­inn „einnig að vera ótengdur henni í raun“. 

Meg­in­hlut­verk þeirrar nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu sem nú starfar er að greina erindi, koma kvört­unum og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár