Björgólfur Thor á stórhýsi á svæði háskólans í gegnum Lúxemborg

Ekki liggur end­an­lega fyrir hvaða starf­semi verður í Grósku hug­mynda­húsi annað en að tölvu­leikja­fyr­ir­tækið CCP verður þar til húsa. Bygg­ingin er í eigu félaga Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar og við­skipta­fé­laga hans sem eru í Lúx­em­borg. Vís­inda­garðar Háskóla Íslands eiga lóð­ina en ráða engu um hvað verður í hús­inu.

Björgólfur Thor á stórhýsi á svæði háskólans í gegnum Lúxemborg
Eign­ar­hald Björg­ólfs Thors og við­skipta­fé­laga hans á hús­inu á svæði Vís­inda­garða í Vatns­mýr­inni er í gegnum félag í Lúx­em­borg. Mynd: btb.is

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi eig­andi Lands­banka Íslands, á stóra fast­eign í Vatns­mýr­inni, á lóð Vís­inda­garða Háskóla Íslands, í gegnum eign­ar­halds­fé­lag í Lúx­em­borg. Verið er að byggja húsið sem mun heita Gróska og munu höf­uð­stöðvar tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­is­ins CCP, sem Björgólfur Thor seldi í fyrra með miklum hagn­aði, meðal ann­ars verða í hús­inu. Húsið verður sam­tals 34 þús­und fer­metrar að stærð. Heim­il­is­fangið er Bjarg­ar­gata 1, áður Sturlu­gata 6. 

Félagið í Lúx­em­borg heitir BAT Real Estate S.á.r.l. og er það í eigu Björg­ólfs Thors að 1/3 leyti í gegnum fyr­ir­tæki sem heitir Reliqium sem einnig er í Lúx­em­borg. Áður átti Björgólfur Thor hlut­inn í hús­inu í gegnum eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki í Genf sem heitir Columbus Trustees S.A. Við­skipta­fé­lagar og starfs­menn Björg­ólfs Thors til margra ára, Birgir Már Ragn­ars­son og Andri Sveins­son, eiga 2/3 í BAT Real Estate móti honum í gegnum félagið Omega Iceland S.á.r.l. BAT gæti verið skamm­stöfun fyrir nöfn þre­menn­ing­anna Birgis, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár