Breyta skuld Birtings í hlutafé og jafna 100 milljóna tap

Halldór Krist­manns­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Alvogen, hefur breytt 118 millj­óna króna skuld Birtings útgáfu­fé­lags í hlutafé.

Breyta skuld Birtings í hlutafé og jafna 100 milljóna tap
Fjöl­miðlar Miklar deilur hafa staðið yfir milli for­svars­manna Dalsins og Dalsdals vegna kaupa á fjöl­miðlum.

Stjórn Birtings útgáfu­fé­lags, sem gefur út tíma­ritin Gest­gjafann, Hús og híbýli, Vikuna og viku­lega frí­blaðið Mannlíf, breytti í júlí 118 millj­óna króna kröfu frá eig­anda sínum í skuld. Á móti var 100 millj­óna króna ójöfn­uðu tapi félags­ins ráð­stafað til lækk­unar á hlutafé.

Halldór Krist­manns­son, fram­kvæmda­stjóri hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen, er stjórn­ar­for­maður og eini hlut­hafi útgáfu­fé­lags­ins í gegnum Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn ehf. Framlag hans til hækk­unar hluta­fjár felst í því að 118 millj­óna króna kröfu hans á hendur Birtingi er breytt í hlutafé. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem það er gert, en í lok árs 2017 breytti Dalurinn 190 millj­óna hlut­haf­a­láni í hlutafé.

Róbert WessmannFor­stjóri Alvogen fór úr hlut­hafa­hópi Birtings í fyrra.

Í apríl í fyrra seldu Róbert Wessmann, for­stjóri Alvogen, Árni Harð­ar­son aðstoð­ar­for­stjóri og Jóhann G. Jóhanns­son, sem einnig starfar hjá lyfja­fyr­ir­tæk­inu, hluti sína til Halldórs. Sam­starfs­menn­irnir keyptu Birting sum­arið 2017 eftir að fyr­ir­huguð kaup Björns Inga Hrafns­sonar og fjöl­miðla­sam­steypunnar Pressunnar á útgáfu­fé­lag­inu urðu að engu.

Birt­ingur hafði áður sett tug­millj­óna króna hlutafé inn í Pressuna vorið 2017 en miklar deilur komu upp í kjöl­farið þegar í ljós kom að helstu eignir félags­ins höfðu áður verið seldar félag­inu Dalsdal ehf. í eigu Sigurðar G. Guð­jóns­sonar lög­manns, nú eig­anda DV. Standa mála­ferli vegna þessa enn yfir í tengslum við slita­með­ferð á Press­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár