Sammála um enga ofbeldishættu þvert á mat Barnahúss

Dóms­mála­ráðu­neytið vill að börn sem marg­sinnis hafa lýst kyn­ferð­is­legri mis­notkun af hálfu föður síns verði hvött til að umgang­ast hann. Sér­fræð­ingur í klínískri barna­sál­fræði hjá Barna­húsi taldi ljóst að fað­ir­inn hefði brotið gegn börn­unum og barna­geð­læknir hefur varað við umgengni.

Sammála um enga ofbeldishættu þvert á mat Barnahúss
Börnin verði studd til umgengni Dóms­mála­ráðu­neytið tekur undir nið­ur­stöðu sýslu­manns um að umgengni barna við föður þeirra kunni að vera þeim hag­felld, þrátt fyrir ítrek­aðar frá­sagnir barn­anna af kyn­ferð­is­legri mis­notkun, og kallar eftir því að börnin verði studd til slíkrar umgengni. Mynd: Davíð Þór

Dóms­mála­ráðu­neytið vill að börn sem segja föður sinn hafa brotið gegn sér verði hvött til að umgang­ast hann. Börnin lýstu kyn­ferð­is­legri mis­notkun í skýrslu­töku fyrir dómi árið 2015 sem fram­kvæmd var með aðstoð sér­fræð­ings í Barna­húsi. Fram kemur í loka­skýrslum Barna­húss frá 2018 að „brot og fram­koma föður“ hafi haft mikil áhrif á börnin. 

Lög­fræð­ingar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu taka þó undir það sjón­ar­mið sýslu­manns að umgengni barn­anna við föð­ur­inn kunni að vera þeim „hag­felld“ og beina því til for­eldr­anna, í úrskurði sem kveð­inn er upp fyrir hönd Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra, að „styðja börnin til slíkrar umgengni“. 

Læknabréf hafa „takmarkaða þýðingu“

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kvað upp úrskurð í máli barn­anna þann 27. nóv­em­ber 2017. Við með­ferð máls­ins voru lögð fram gögn frá barna­geð­lækni og sál­fræð­ingi, bréf skóla­hjúkr­un­ar­fræð­ings, yfir­lýs­ing kenn­ara, til­kynn­ingar leik­skóla, barna­sál­fræð­ings og barna­geð­læknis til barna­vernd­ar­nefndar, kæra til lög­reglu og ítar­legar frá­sagnir barn­anna sjálfra af atvikum hjá föður sem sam­rýmd­ust kyn­ferð­is­legri mis­notkun að mati með­ferð­ar­að­ila. 

Hér­aðs­sak­sókn­ari og rík­is­sak­sókn­ari töldu málið ólík­legt til sak­fellis, meðal ann­ars vegna þess hve langur tími var lið­inn síðan meint brot voru sögð hafa átt sér stað. Sér­fræð­ingur í klínískri barna­sál­fræði, sem vann loka­skýrslur um mál barn­anna í Barna­húsi, taldi þó ljóst, eftir grein­ingu og með­ferð sem fólst í níu við­tölum við börnin, að fað­ir­inn hefði brotið gegn þeim. Þetta hefði haft áhrif á líðan þeirra og börnin ótt­uð­ust að brotið yrði aftur gegn þeim. Þá sagði barna­geð­læknir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár