Heilbrigðisstarfsfólk á Vesturlandi segir „vegið að rétti hins ófædda barns“

Biðla til þing­manna og ráð­herra að fresta afgreiðslu þung­un­ar­rofs­frum­varps­ins.

Heilbrigðisstarfsfólk á Vesturlandi segir „vegið að rétti hins ófædda barns“

Starfs­fólk Heil­brigðis­stofn­unar Vest­ur­lands hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra og þing­mönnum áskorun þar sem mælt er ein­dregið gegn því að frum­varpið til laga um þung­un­ar­rof verði sam­þykkt í núver­andi mynd. 

„Teljum við að það, að kona hafi óskertan rétt til að fá þungun rofna fram að lokum 22. viku þung­unar, sé allt of langt gengið og vegið sé að rétti hins ófædda barns,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. Jafn­framt kemur fram að starfs­menn­irnir telji það aft­ur­för að kona „eigi kost“ á fræðslu og ráð­gjöf fag­fólks eftir því sem þörf krefur fremur en að henni sé „skylt“ að fá slíka ráð­gjöf. 

Atkvæða­greiðsla um frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra til laga um þung­un­ar­rof fer fram á Alþingi í kvöld. 22 vikna tíma­mörkin í frum­varp­inu eru í sam­ræmi við ráð­gjöf Félags fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna, Land­spít­al­ans og Ljós­mæðra­fé­lags Íslands. 

Heil­brigð­is­starfs­fólk á Vest­ur­landi kallar eftir því að atkvæða­greiðsl­unni verði frestað og málið fái lengri umfjöllun. „Teljum við ótækt að kalla það þung­un­ar­rof, verði að fram­kalla fæð­ingu því lífi móður sé stefnt í hættu eftir lok 22. viku. Við krefj­umst þess að miðað verði að hámarki við lok 20. viku þung­unar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þungunarrof

Þrautaganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barnsins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“
InnlentÞungunarrof

Þrauta­ganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barns­ins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“

And­stæð­ingar þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum beita harka­legum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mót­mæl­endur gegn þung­un­ar­rofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóst­ur­eyð­ingu njóta fylgdar sjálf­boða­liða í gegnum hóp mót­mæl­enda.
„Að blanda einhverfu í þetta er út í hött“
Innlent

„Að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött“

María Rut Krist­indóttir er ein margra sem gagn­rýnir Við­skipta­blaðið fyrir nafn­lausan pistil þar sem Greta Thunberg, sænska stúlkan sem hefur barist í lofts­lags­málum, er gagn­rýnd og vakin athygli á því að hún er ein­hverf. Mannlíf tók saman nokkrar sleggjur lið­innar viku. „Ósmekk­legt. Og að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött … Og já umhverf­is­mál snú­ast ekki um vinstri-hægri...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár