Sjálfstæðismaðurinn sem þreif í hælisleitendur: „Mér urðu á mistök“

Þor­valdur Sig­mars­son, fyrr­ver­andi varð­stjóri og stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­fé­lagi Kópavogs, segir skort á ensku­kunn­áttu hafa valdið því að hann sagði hæl­is­leit­endum að hann væri lög­reglu­maður. Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, hafði kynnt hann sem slíkan.

Sjálfstæðismaðurinn sem þreif í hælisleitendur: „Mér urðu á mistök“

Fyrr­ver­andi lög­reglu­maður og stjórn­ar­maður í Sjálf­stæð­is­fé­lag­inu í Kópavogi segir það hafa verið mis­tök hjá sér að kynna sig sem lög­reglu­mann þegar hann hót­aði að fjar­lægja hæl­is­leit­endur af fundi hverf­is­fé­laga Sjálf­stæð­is­flokks­ins með valdi.

„Það var mik­ill æsingur á fund­inum,“ segir Þor­valdur Sig­mars­son, fyrr­ver­andi varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í sam­tali við Stundina. „Ég ætl­aði ekki að beita þessa menn neinu harð­ræði eða lög­reglu­valdi.“

Tveir hæl­is­leit­endur höfðu staðið upp og beint spurn­ingum, ótengdum við­fangs­efni fund­ar­ins, þriðja orku­pakk­anum, að ráð­herrum sem við­staddir voru, þeim Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur dóms­mála­ráð­herra og Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra. 

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs og fund­ar­stjóri, kynnti þá Þorvald og annan mann sem lög­reglu­menn, þegar þeir nálg­uð­ust hæl­is­leit­end­urna. „Við ætlum ekki að hringja í lög­regl­una því þessir tveir herra­menn hérna eru lög­reglan,“ sagði Ármann á ensku. „Svo við munum bara nota þá.“

Þor­valdur gekk þá að mönn­unum og sagði þeim á ensku að sitja kyrrir og hafa hljóð. „Ef ekki, þá tökum við ykkur út. Við tökum ykkur út. Við erum lög­reglan. Þú getur talað við mig, ég er lög­reglu­maður.“

Síðar greip Þor­valdur, merktur Sjálf­stæð­is­flokknum, í sitj­andi erlendan mann sem hafði ekki tekið til máls og reyndi að reka hann út. Þá þreif hann í hæl­is­leit­and­ann sem staðið hafði upp og talað yfir sal­inn og skip­aði honum að fara út.

„Mér urðu á mis­tök þegar ég sagði þetta,“ segir Þor­valdur. „Þetta kom öfugt út úr mér. Ég leið­rétti þetta við þessa menn á eftir. Ég ætl­aði að segja „I was a policeman“. Ég er eng­inn sér­fræð­ingur í ensku.“

Þor­valdur er vara­maður í stjórn Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi. „Við vorum bara að reyna að fá þá til þess að setj­ast niður og koma ró á fund­inn. Ég tók í þennan sem stóð uppi til að reyna að ná athygli hans. Ég ætl­aði ekki að fara að slást við hann eða henda honum út eða neitt þannig. Þessir sem sátu þarna höfðu sig ekk­ert í frammi. Það var við annan þeirra sem ég átti þessi orð sem hefðu betur ekki verið sögð.“

„Setn­ingin kom öfugt út úr mér
og það er mis­skiln­ing­ur­inn“

Aðspurður segir Þor­valdur að hann hefði ekki kynnt sig með sama hætti gagn­vart íslensku­mæl­andi mót­mæl­anda. „Þetta eru bara mis­tök af minni hálfu í fram­setn­ingu á ensku,“ segir hann. „Ármann hafði talað um að við værum lög­reglu­menn og því er beint til mín frá þessum aðila hvort ég væri lög­reglu­maður eða ekki og ég sagði honum það. Ég hefði ekki gert það við Íslend­ing.“

Þor­valdur seg­ist hafa rætt við mann­inn sem hann þreif í eftir fund­inn og þeir hafi tek­ist í hendur. „Ég er ekki neinn útlend­inga­hat­ari eða hæl­is­leit­enda­hat­ari, langt því frá,“ segir Þor­valdur. „Setn­ingin kom öfugt út úr mér og það er mis­skiln­ing­ur­inn.“

Bæjarstjóri viðurkennir „klaufaskap“

Ármann Kr. Ólafsson

Eins og áður segir var það Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, sem fyrst kynnti menn­ina tvo sem lög­reglu­menn. Í við­tali við Hring­braut sagði Ármann að það hafi verið klaufa­skapur af sér. „Ég tók bara svona til orða að þeir væru lög­reglan, þetta var bara sagt í hita leiks­ins,“ sagði Ármann. „Þetta kom mér allt í opna skjöldu. Ég vissi ekk­ert hvaða fólk þetta var.“

Ármann sagð­ist hafa verið brugðið þegar menn ætl­uðu að láta fund­inn snú­ast um annað en þriðja orku­pakk­ann. „Það sem ég átti bara við var að þeir voru komnir á aldur og voru í lög­regl­unni.“

Aðspurður sagð­ist hann ekki hafa þekkt hvort menn­irnir væru starf­andi lög­reglu­menn. „Nú þekki ég það ekki. Hvort þeir leysi af eða eitt­hvað svo­leiðis. Ég bara gleymdi að segja fyrr­ver­andi. Ég hefði átt að segja að þeir væru fyrr­ver­andi lög­reglu­menn, það var bara klaufa­skapur.“ 

Atvikið var til umræðu í Silfrinu á RÚV á sunnu­dag. Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði í þætt­inum að auð­vitað gæti eng­inn tekið sér lög­reglu­vald. „Þarna komu upp að­stæður sem komu öllum í opna skjöldu,“ sagði hún. „Við vorum búin að eiga góðan fund og það þurfti ein­hvern veg­inn að halda stjórn á fund­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár