Öngstræti Mueller-rannsóknarinnar

Fyrir rúmri viku síðan, fimmtu­dag­inn 18. apríl, birti dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna stytta og rit­skoð­aða útgáfu af skýrslu Robert Mueller. Þar með kom ský­slan, eða hluti hennar í það minnsta, fyrir augu almenn­ings í fyrsta sinn, því það eina sem hafði birst fram að því var fjög­urra blað­síðna end­ur­sögn Willaim Barr á helstu nið­ur­stöðum skýrsl­unnar.

Öngstræti Mueller-rannsóknarinnar
Vilja sjá skýrsl­una alla Hópar fólks söfn­uð­ust saman í fjölda borga í Banda­ríkj­unum fyrr í mán­uð­inum og kröfð­ust þess að skýrslan Robert Mueller verði öll gerð opin­ber. Fyrir rúmri viku birti dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna stytta og rit­skoð­aða útgáfu af skýrsl­unni. Mynd: Shutterstock

Það er löng hefð að birta slæmar fréttir í viku­lokin, og enn betra að grafa fréttir með því að birta þær fyrir langa helgi eins og páska­helg­ina. Það er hins vegar engin hætta á að Mueller-skýrslan hverfi úr fjöl­miðlum í bráð, því Demókratar hafa kraf­ist þess að þingið fá aðgengi að allri skýrsl­unni og und­ir­liggj­andi gögnum. Repúblík­anar hafa fyrir sitt leyti lofað rann­sóknum á rann­sókn­inni og Hvíta húsið hefur lýst yfir að það muni berj­ast gegn öllum til­raunum þings­ins til að stefna gögnum eða vitnum rann­sókn­ar­innar.

Rússarannsóknin sem öngstræti

Það er varla ofsögum sagt að fáum skýrslum hafi verið beðið eftir af jafn mik­illi eft­ir­vænt­ingu og skýrslu Mueller. Margir and­stæð­ingar for­set­ans voru sann­færðir um að skýrslan myndi sýna að Vladimir Putin hefði rænt kosn­ing­unum 2016 fyrir Trump. For­set­inn væri þannig afhjúp­aður sem strengja­brúða Putin og myndi í kjöl­farið hrökkl­ast úr emb­ætti. 

Umfjöllun um rann­sókn­ina fékk þannig oft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár