Innflytjandi kemur hælisleitendum til varnar: „Hræðsla og ótti var mitt daglegt brauð í fjögur ár“

Jasmina Crnac flutti til Íslands í kjöl­far styrj­ald­anna á Balkanskaga á tíunda ára­tugnum. Hún segir Íslend­inga eiga erfitt með að skilja aðstæður þeirra sem flýja hörm­ungar og gagn­rýnir umræðu um mein­tan sóða­skap hæl­is­leit­enda.

Innflytjandi kemur hælisleitendum til varnar: „Hræðsla og ótti var mitt daglegt brauð í fjögur ár“

Kona sem fékk dvalar- og atvinnu­leyfi á Íslandi eftir að Bosn­í­u­stríð­inu lauk árið 1995 segir að sér ofbjóði og sárni ljót orð­ræða um hæl­is­leit­endur, flótta­fólk og inn­flytj­endur á Íslandi. „Við öll erum fólk fyrst og fremst!“ skrifar Jasmina Crnac í færslu á Facebook síðu sinni. „Af hverju getum við ekki tekið fólki eins og það er og hjálpað fólki í neyð? Það nóg af auð­lindum fyrir alla.“

Jasmina hvetur fólk til að gefa hæl­is­leit­endum tæki­færi, enda séu þeir að flýja erf­iðar aðstæður í leit að betra lífi. „Ég veit það fyrir víst að eng­inn Íslend­ingur hefur þurft að flýja sitt heim­ili vegna stríðs eða ofsókna yfir­valda þannig það getur verið erfitt að skilja aðstæður,“ skrifar hún. „Fólk sem hefur alla tíð búið við for­rétt­indi getur átt erfitt að skilja aðstæður hæl­is­leit­anda og ég skil það vel. En reynið nú að ímynda ykkur það að þurfa gera það, skilja allt ykkar sem þið eruð búin vinna alla ævi (eins og for­eldrar mínir þurftu gera) og þurfa biðja annað ríki til að taka á móti ykkur og byrja upp á nýtt.“

Ýmsir hafa kvartað undan mót­mælum hæl­is­leit­enda við Aust­ur­völl und­an­farna daga, meðal ann­ars Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis, Björn Bjarna­son fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Páll Magn­ús­son, núver­andi for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis og Björn Ingi Hrafns­son fjöl­miðla­maður. Hafa þeir meðal ann­ars gagn­rýnt sóða­skap mót­mæl­enda og hneyksl­ast á því að stytt­unni af Jóni Sig­urðs­syni sé sýnd van­virð­ing. 

Jasmina segir að hæl­is­leit­end­urnir gangi ekki öðru­vísi um en aðrir. „Unda­farna daga hafa borist fréttir í fjöl­miðlum um hæl­is­leit­endur sem eru að mót­mæla með­ferð rík­is­valds gagn­vart þeim. Á sama tíma hefur kommenta­kerfið á sam­fé­lags­miðlum farið af staða með við­bjóðs­legan orða­forða í garð þessa fólks. Oft á tíðum með mjög röngum upp­lýs­ingum og í þokka­bót dreift ósann­indum um mála­flokk sem þeir greini­lega þekkja ekki neitt,“ skrifar hún.

„Ég ætla leyfa mér að benda ykkur á að skoða myndir eftir bús­á­halda­bylt­ing­una þegar Íslend­ingar mót­mæltu svona til sam­an­burðar og hversu vel var gengið um þar. Einnig ætla ég benda á frétt­ina frá Sel­tjarna­nesi þar sem ferða­manna­skítur þykir eðli­leg sjón, eða rusla­haugar eftir eina úti­há­tið. Það eru nefni­lega fleiri sóðar en bara hæl­is­leit­endur og ef þeir eiga fara úr landi fyrir það og fyrir það að berj­ast fyrir sinum mann­rétt­indum þá hljóta þá fleiri fylgja sama for­dæmi,“ skrifar Jasmina.

„Ég er stoltur Íslend­ingur,“ bætir hún við. „Ástandið hér er aldrei svo slæmt því ég hef aldrei upp­lifað hér það sem ég upp­lifði í mínu landi á stríðs árum. Auðvitað má alltaf gera betur en mín lífs­reynsla hefur kennt mér að bera virð­ingu fyrir því sem maður hefur. Einnig virð­ingu fyrir fólki alveg sama hvaða trú­ar­bragða það er, útliti eða annað. Það er einnig mjög gott vera nægju­samur og vera þakk­látur fyrir allt sem lífið færi þér. Fordómar er eitt­hvað sem ég vil ekki þekkja.“

Óttuðust pyntingar og sprengjuregn

Jasmina lýsir miklum hremm­ingum sínum og fjöl­skyldu sinnar á tíunda ára­tugnum. „Við vorum skil­greind sem afætur (svipað og gert er hér við hæl­is­leit­endur). Fordómar og hræðsla að við myndum taka eitt­hvað frá þeim var mikil. Við vorum ann­ars flokks fólk og oft ekki fólk heldur dýr. Við vorum glæpa­menn og allt það fram eftir götum.“

„Við vorum ann­ars flokks fólk
og oft ekki fólk heldur dýr“

Jasmina seg­ist ítrekað hafa þurft að rök­ræða mál­efni hæl­is­leit­enda á und­an­förnum dögum. „Ég hef kynnt mér málið þeirra vel og tel mig vel upp­lýsta að ég læt ekki segja mér hvað á mér að finn­ast. Ekki nóg með það heldur ég get sett mig í spor þeirra einnig. En til þess að geta sett mér í spor þeirra er eina sem ég þarft að gera er að vera mann­leg. Ég hef reyndar lífs­reynslu af stríði og flótta en varð síðan heppin að fá for­rétt­indi að koma hér til Íslands að vinna. For­rétt­indapési eins og ég er í dag kom ekki sem flótta­maður eða hæl­is­leit­andi (liggur við að ég tek fram „sem betur fer“) heldur hefur unnið fyrir því sjálf.“

Jasmina lýsir hræði­legum aðstæðum sínum og fjöl­skyldu sinnar áður en þau fengu dval­ar­leyfi á Íslandi. „Ég skal gefa ykkur smá inn sýn í mitt líf á þeim tíma frá árinu 1991-1995. Ég og fjöl­skylda mín bjuggum í 4 ár í stríðs ástandi þar sem fyrst og fremst var ekki vatn, raf­magn né hiti. Oft á tíðum ekki nauð­syn­legar vörur eins og matur til að borða. Ég vissi ekki lengur hvernig kló­sett­pappír leit út því á þessum tíma var það mun­að­ar­vara eins og margar aðrar vörur. Í öðru lagi her­menn voru að labba á milli húsa að drepa fólk og nauðga konum og börnum. Maður vissi aldrei hver er næstur. Í þriðja lagi bæði karl­menn og konur voru tekið í fang­elsi eða þræla­búðir, pynt­aðir, lamin og neyðir til að vinna. Pabbi minn svaf oft undir beru himni í kart­öflu­garði eða maís­garði. Fólkið var rekið úr sinum eigin húsum og börn gengu ekki skóla vegna sprengja sem reglu­lega voru koma frá óvin­inum sem sat upp á fjalli í tíma og ótíma að miða á ung börn eða ung­linga. Yfir­leitt var alltaf neyð­ar­á­stand þar sem við þurftum sitja í ísköldu, steyptu her­bergi sem var myrkur.“

Vissu ekki hvort þau mundu lifa af

Áður en styrj­öldin hófst var fjöl­skylda Jasminu vel stæð og lifði góðu lífi, að hennar sögn. Allt hafi verið tekið af þeim á einum degi. „Ég borð­aði ekki kjöt í 4 ár ein­fald­lega vegna þess að það var ekki í boði,“ skrifar hún. „Ég átti ekki skó né almenni­leg föt til klæð­ast nema þegar Rauði kross­inn var að úthluta fötum. Líka þá fund­ust ekki nægi­lega stór skó á mig þannig ég varð að labba skó­laus, í rifnum skó eða í allt of þröngum skóm sem valdi því að ég var oft með blæð­andi sár á löpp­unum. Ég sat í myrkri dögum saman bæði vegna sprengja og raf­magns­leysi og í ísköldu her­bergi og var þakk­lát ef ég hef fengið soðin grjón í mat­inn. Ótta­slegin um líf mitt og líf fjöl­skyldu mínar því ég vissi aldrei hvort við lifum af eða ekki.“

Hún seg­ist alltaf hafa upp­lifað Íslend­inga sem frjáls­lynt, gott fólk, sem laust sé við for­dóma. Þeim reyn­ist þó erfitt að skilja aðstæður þeirra sem flýja hörm­ungar. „Hræðsla og ótti var mitt dag­legt brauð í 4 ár. Oft var draum­ur­inn að geta flúið land og geta fundið öryggi á ný. For­eldrar mínir reyndu það en það tókst ekki. Vega­bréfið okkar var og er ennþá ekki eins og vega­bréf Íslend­inga að geta ferð­ast eins og okkur sýnd­ist og sýn­ist. Enda ekk­ert annað hægt í þannig ástandi en að láta sig dreyma um öryggi og reyna flýja. Þú fyllist von­leysi og þung­lyndi því það er ekk­ert sem þín bíður í landi sem sprengjur koma í tíma og ótíma, engin vinna, eng­inn pen­ingur, allt í rúst, sprengjur búin að eyði­leggja borg­ina, oft á tíðum eng­inn matur nema Rauði kross­inn úthlutar hveiti (sem var með fullt af ormum oft á tíðum), tún­fisk, olíu og stundum salt og sykur,“ skrifar hún.

„Síðasta en ekki síðst virðum mann­rétt­indi fólks!“ skrifar Jasmina. „Ef þú krefst þess að eiga mann­rétt­indi þá hlýtur þú vera hlynntur því að aðrir fái að eiga þau líka.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár