Vonsvikin yfir tillögum ríkisstjórnarinnar og segja að tilboð SA hefði „leitt til kaupmáttarrýrnunar fyrir stóra hópa launafólks“

Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar gera að engu vonir full­trúa laun­þega um að líf fær­ist í kjara­við­ræð­urnar. Vil­hjálmur Birg­is­son rauk af fundi með stjórn­völdum.

Vonsvikin yfir tillögum ríkisstjórnarinnar og segja að tilboð SA hefði „leitt til kaupmáttarrýrnunar fyrir stóra hópa launafólks“

For­ystu­fólk VR, Eflingar, VLFA og VLFG lýsir reiði og sárum von­brigðum með þær til­lögur sem rík­is­stjórnin lagði fram á fundi með for­seta og vara­for­setum ASÍ í dag. Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður VLFA, rauk af fund­inum.

„Viðræður hafa staðið tæpt eftir að SA lögðu fram til­boð í síð­ustu viku sem leitt hefði til kaup­mátt­arrýrn­unar fyrir stóra hópa launa­fólk,“ segir í til­kynn­ingu frá félög­unum. „SA höfn­uðu í kjöl­farið sann­gjörnu gagntil­boði sam­flots­fé­lag­anna. Vonir stóðu til að aðkoma stjórn­valda gæti hleypt glæðum í við­ræður. Ljóst er að til­lögur stjórn­valda gera þær vonir að engu.“

Fundað verður í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna næstu daga fyrir fund for­manna þeirra með Samtökum atvinnu­lífs­ins hjá Rík­is­sátta­semj­ara á fimmtu­dag. „Sam­flots­fé­lögin standa sam­einuð og stað­föst í kröf­unni um að launa­fólk geti lifað af launum sínum og að stjórn­völd geri löngu tíma­bærar kerf­is­breyt­ingar í rétt­læt­isátt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár