Norski laxeldisrisinn Salmar orðinn meirihlutaeigandi í Arnarlaxi eftir 2,5 milljarða viðskipti

Salmar kaupir rúm­lega 12 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi af óþekktum aðilum. Verðmæti Arnarlax um 20 millj­arðar króna miðað við yfir­tökutil­boðið sem öðrum hlut­höfum hefur verið gert. Kaupverð hluta­bréf­anna um 2,5 millj­arðar. Salmar vill ekki gefa upp hver selj­andi bréf­anna er.

Norski laxeldisrisinn Salmar orðinn meirihlutaeigandi í Arnarlaxi eftir 2,5 milljarða viðskipti
Selur ekki Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, ætlar ekki að selja hluta­bréf sín í félag­inu þrátt fyrir yfir­tökutil­boð Salmar.

Norska lax­eld­is­fyr­ir­tækið Salmar ASA hefur keypt ríf­lega 12 pró­senta hlut í íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. Frá þessu greinir Salmar í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­innar í morgun þar sem félagið er skráð á markað.

Við­skiptin þýða að Salmar er orð­inn eig­andi að meira en 50 pró­sent hluta­fjár í Arn­ar­laxi og kemur fram í til­kynn­ing­unni að félagið hafi nú gert öðrum hlut­höfum Arnarlax yfir­tökutil­boð í þeirra hluti í félag­inu.

Ekki er tekið fram af hverjum Salmar kaupir hluta­bréfin en mögu­legt er að selj­end­urnir séu íslensku fyr­ir­tækin Fiski­sund ehf. og Trygg­inga­mið­stöðin. 

Kjartan selur ekki

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hafi nú þegar hafnað til­boði í rúm­lega 2 pró­senta sinn hlut í Arn­ar­laxi og mun Salmar því að minnsta kosti ekki kaupa upp alla eft­ir­stand­andi hluti. Kjartan segir í sam­tali við Stundina að hann muni ekki tjá sig um við­skipti Salmar AS með hluta­bréf í Arn­ar­laxi en stað­festir þó að hann ætli sér ekki að selja hlut sinn. „Ég vil vera með áfram,“ segir hann. 

 „Ég vil vera með áfram“

Meðal ann­arra hlut­hafa Arnarlax eru ýmis norsk fyr­ir­tæki. Meðal ann­ars fyr­ir­tæki í eigu norska hót­el­eig­and­ans og millj­arða­mær­ings­ins Petter Storda­len sem er lík­lega með þekkt­ari mönnum Noregs og sem fjöl­miðlar þar í landi fjalla mikið um.  Storda­len á nærri 3 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi í gengum félagið Strawberry Equities AS. 

Getur selt til SalmarEinn af þeim hlut­höfum Arnarlax sem getur selt til Salmar AS í kjöl­farið á við­skipt­unum er norski millj­arða­mær­ing­ur­inn Petter Storda­len.

Huldueignarhald næst stærsta hluthafans

Eins og Stundin fjall­aði um í síð­ustu viku þá er banki í Lúx­em­borg skráður sem næst­stærsti hlut­hafi íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax með rúm­lega 14,5 pró­senta eign­ar­hlut. Ekki er hægt að sjá í árs­reikn­ingum Arnarlax hvaða fjár­festar eru á bak við þennan eign­ar­hlut bank­ans, Clearstream Banking S.A.

Um er að ræða hlutafé sem ein­hverjir fjár­festar eiga í gegnum við­skipta­manna­reikn­ing hjá umræddum banka en ekki er ljóst hverjir þetta eru. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi norska eign­ar­halds­fé­lags­ins Arnarlax AS, móð­ur­fé­lags Arnarlax á Íslandi, sem er stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki lands­ins. 

Hlutaféð sem Salmar hefur nú keypt er næstum því jafn­mikið og hluta­féð sem þessi banki hefur haldið utan. Stundin leiddi líkum að því í blaði sínu að um væri að ræða hlutafé í eigu fyr­ir­tæk­is­ins Fiski­sunds ehf., sem seldi Arn­ar­laxi fyr­ir­tækið Fjarða­lax fyrir nokkrum árum og fékk greitt í reiðufé og með hluta­bréfum í sam­ein­uðu félagi. Einn af hlut­höfum Fiski­sunds, Kári Þór Guð­jóns­son, gat ekki veitt upp­lýs­ingar um þetta í sam­tali við Stundina. 

Fjár­mála­stjóri Salmar, Trond Tuvsteinn, vill aðspurður ekki gefa upp hverjir það eru sem seldu umrædd hluta­bréf: „Á þess­ari stundu þá get ég ekki gefið upp nöfn selj­end­anna,“ segir Trond í tölvu­pósti til Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár