Rekstri þjóðarsjóðs verður útvistað til einkaaðila

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar gerir ráð fyrir að einka­fyr­ir­tæki sjái um rekstur þjóð­ar­sjóðs þrátt fyrir aug­ljósa sam­legð við grunn­verk­efni Seðla­banka Íslands. „Myndi færa stefnu­mót­un­ina fjær íslenskum stjórn­völdum og hafa í för með sér kostnað,“ segir aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri.

Rekstri þjóðarsjóðs verður útvistað til einkaaðila
Einka­að­ili ann­ast rekst­ur­inn Einka­fyr­ir­tæki mun fá tæki­færi til að ráð­stafa tekj­unum sem renna til rík­is­ins vegna fénýt­ingar íslenskra orku­auð­linda sam­kvæmt frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar. Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið gagn­rýna útfærsl­una. Mynd: Pressphotos

Frumvarp rík­is­stjórn­ar­innar um þjóð­ar­sjóð gerir ráð fyrir að rekstri sjóðs­ins verði útvi­stað til einka­að­ila og að einn og sami aðil­inn ann­ist vörslu, eigna­stýr­ingu, dag­legan rekstur og innra eft­ir­lit með starf­sem­inni. Af orða­lagi frum­varps­ins má ráða að þar komi ein­ungis við­skipta­bankar, lána­fyr­ir­tæki og spari­sjóðir til greina. 

Fjár­mála­eft­ir­litið bendir á þetta í umsögn um frum­varpið og gagn­rýnir meðal ann­ars að fyr­ir­komu­lagið sé frá­brugðið því sem tíðkast hjá rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða og mælt er fyrir um í Evr­óputil­skipun um rekstr­ar­að­ila sér­hæfðra sjóða frá 2011. 

Mark­miðin ekki ólíkSeðla­bank­inn sér nú þegar um varð­veiðslu gjald­eyr­is­vara­forða Íslands og er þar bund­inn af sjón­ar­miðum sem eru um margt sam­bæri­leg þeim sem liggja að baki stofnun þjóð­ar­sjóðs. 

Þá kann það að útvista þjóð­ar­sjóðnum til einka­að­ila í stað þess að koma honum fyrir hjá Seðla­banka Íslands að hafa í för með sér óþarfan kostnað fyrir hið opin­bera.

Seðla­bank­inn bendir á að lána­mál rík­is­ins og varð­veisla gjald­eyr­is­vara­sjóðs séu nú þegar á hendi bank­ans þar sem safn­ast hefur upp þekk­ing á mis­mun­andi eigna­flokkum, ávöxtun og áhættu­dreif­ingu. Því geti verið hag­kvæmt að Seðla­bank­inn sjái um rekstur sjóðs­ins, enda myndi útvistun til einka­fyr­ir­tækja eðli máls­ins sam­kvæmt fela í sér að stefnu­mót­unin fær­ist fjær íslenskum stjórn­völdum.

Fjárhagslegur viðbúnaður gegn skakkaföllum

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram frum­varp til laga um þjóð­ar­sjóð þann 5. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Sjóðnum er ætlað að verða eins konar áfalla­vörn til að mæta efna­hags­legum skakka­föllum sem þjóð­ar­búið kann að verða fyrir í fram­tíð­inni, til dæmis vegna vist­kerf­is­brests, nátt­úru­ham­fara, hryðju­verka eða netárása. Hann verður fjár­magn­aður með tekjum af nýt­ingu orku­auð­linda, einkum arð­greiðslum frá Lands­virkjun til rík­is­ins, en sam­kvæmt áætl­unum fyr­ir­tæk­is­ins gæti arð­greiðslu­geta þess brátt numið 10 til 20 millj­örðum króna á ári. 

„Í stað þess verði þeim varið til að byggja upp fjár­hags­legan við­búnað í Þjóð­ar­sjóði“

„Hyggi­legt þykir að þessar nýju tekjur verði ekki nýttar eins og hver annar tekju­stofn til þess að standa undir reglu­bundnum rík­is­út­gjöldum. Í stað þess verði þeim varið til að byggja upp fjár­hags­legan við­búnað í Þjóð­ar­sjóði til að bregð­ast við ófyr­ir­séðum áföllum og stuðla að efna­hags­legu öryggi þjóð­ar­innar til fram­tíðar,“ segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins. 

Skylt að fjárfesta í gerningum með lága lánshæfiseinkunn

Fjár­mála­eft­ir­litið gerir ýmsar athuga­semdir við útfærsl­una og vekur til að mynda athygli á að í lög­unum er hvergi mælt fyrir um hvernig áhættu­stýr­ingu skuli háttað. Auk þess sé sú kvöð lögð á sjóð­inn að tryggja „dreifða áhættu af fjár­fest­ingum m.a. eftir láns­hæf­is­flokkum“. Með því sé þess kraf­ist að sjóð­ur­inn fjár­festi í fjár­mála­gern­ingum sem hafa hlotið lága láns­hæf­is­ein­kunn. Á hinn bóg­inn sé ekki kveðið á um dreifða áhættu eftir gjald­miðlum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár