Ráðherra mótfallin arðgreiðslum úr heilbrigðisfyrirtækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim

Nýr for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands hefur störf með látum og lýsir yfir and­stöðu við arð­greiðslur úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum. Heil­brigð­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir, er sam­mála því mati en hyggst ekki beita sér í mál­inu og bendir á að það sé ekki á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar.

Ráðherra mótfallin arðgreiðslum úr heilbrigðisfyrirtækjum en hyggst ekki beita sér gegn þeim
Hörð and­staða Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur í gegnum árin verið einn harð­asti gagn­rýn­andi arð­greiðslna úr einka­rek­inni heil­brigð­is­þjón­ustu á Alþingi. Mynd: Pressphotos

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra er mót­fallin arð­greiðslum úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum en hyggst ekki beita sér fyrir  því að slíkar arð­greiðslur verði bann­aðar. Þetta kemur fram í svörum frá ráð­herr­anum sem aðstoð­ar­maður hennar, Birgir Jak­obs­son, hefur sent Stund­inni. 

Blaðið spurði heil­brigð­is­ráð­herra um afstöðu hennar til arð­greiðslna úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum í ljósi við­tals við nýjan for­stjóra Sjúkra­trygg­inga, Maríu Heim­is­dóttir, í Lækna­blað­inu þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að mögu­lega sé ekki við hæfi að einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki greiði út arð til hlut­hafa sinna. Orðrétt sagði María í við­tal­inu: „Nú greiða skatt­borg­arar alla heil­brigð­is­þjón­ustu á land­inu og engir aðrir pen­ingar eru í umferð í kerf­inu. Er rétt­læt­an­legt að nota þetta skattfé til að greiða eig­endum heil­brigð­is­fyr­ir­tækja stórar fjár­hæðir í arð? Kannski væri heppi­legra að þetta fé færi í að auka hag­kvæmni heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og gæðin.“

Fjölmörg einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki á Íslandi eru mjög arð­bær og greiða út veg­legan arð til hlut­hafa á hverju ári eins og komið hefur fram í grein­ingum Láns­trausts á arð­bær­ustu fyr­ir­tækjum lands­ins út frá hlutafé þeirra og í ýmsum umfjöll­unum fjöl­miðla í gegnum árin. 

„Er verj­andi að taka gróða út úr heil­brigð­is­kerf­inu?“

Sjúkra­trygg­ingar Íslands eru rík­iss­stofnun sem heyrir undir heil­brigð­is­ráðu­neytið og var það Svandís sem skip­aði Maríu Heim­is­dóttur í for­stjóra­starfið og tók hún við því af Stein­grími Ara Arasyni í byrjun árs­ins. Sjúkra­trygg­ingar Íslands er ekki póli­tísk stofnun í þeim skiln­ingi að hún stundi stefnu­mörkun í heil­brigð­is­málum heldur er hlut­verk hennar að fylgja ákvörð­unum sem teknar eru af rík­is­stjórn­inni hverju sinni og heil­brigð­is­ráð­herra sem stýrir mála­flokknum fyrir hennar hönd. Orð Maríu í við­tal­inu vekja því tals­verða athygli þar sem nýr for­stjóri rík­is­stofn­un­ar­innar lýsir með þeim póli­tísku mati sínu á arð­greiðlum heil­brigð­is­fyr­ir­tækja.  Þá er það einnig stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands sem gerir samn­inga við einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki, sér um greiðslur til þeirra á grund­velli samn­ing­anna og sér um eft­ir­lit með fram­fylgd samn­ing­anna.

Segist vera á sömu skoðun og árið 2015

Stundin spurði Svandísi meðal ann­ars að því hvort hún væri sam­mála þessu mati Maríu og benti á orð Svan­dísar, sem þá var óbreyttur þing­maður í stjórn­ar­and­stöðu frá árinu 2015, þar sem hún lýsti sig and­víga arð­greiðslum úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum. 

Í ræðu sinn á Alþingi sagði Svandís:  „Við verðum að muna að einka­vædd eða einka­rekin heil­brigð­is­þjón­usta er dýr­ari en opin­ber heil­brigð­is­þjón­usta, og af hverju er það? Í fyrsta lagi vegna þess að meiri stjórn­un­ar­kostn­aður er almennt í einka­rek­inni heil­brigð­is­þjón­ustu og reyndar líka lægri laun til þeirra sem sinna dag­legum störfum og stoð­þjón­ustu eins og ræst­ingum. Aukinn kostn­aður einka­rek­innar heil­brigð­is­þjón­ustu fer að miklu leyti í laun yfir­manna og milli­stjórn­enda en lítið til almennra starfs­manna. Þetta er veru­leik­inn. Hin ástæðan fyrir því að einka­rekin heil­brigð­is­þjón­usta er dýr­ari er sú að greiða þarf eig­endum arð. Ef það er gert, að greiða eig­endum arð út úr kerf­inu, er sá arður stór hluti af veltu við­kom­andi sjúkra­stofn­unar. Einka­rekstur er nefni­lega gróða­rekstur. Hæstv. ráð­herra hefur enn ekki svarað því, og ég mundi vilja óska þess að hann svar­aði því hér í loka­ræðu sinni: Er verj­andi að taka gróða út úr heil­brigð­is­kerf­inu? Er verj­andi að gera (Forseti hringir.) heilsu­leysi og sjúk­dóma að féþúfu?“

Svandís vill hins vegar ekki svara því beint nú, með já eða nei, hvort hún er sam­mála mati Maríu en í svari hennar kemur fram að hún sé ennþá á sömu skoðun um arð­greiðslur heil­brigð­is­fyr­ir­tækja og árið 2015. „Ráðherra hefur sömu skoðun og kom fram í áður­nefndri ræðu,“ segir í svari hennar við spurn­ingu Stund­ar­innar.

Ekki er því hægt að túlka orð Svan­dísar með öðrum hætti, þó hún segi það ekki beint út, en að hún sé sam­mála því mati Maríu að einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki, fjár­mögnuð af rík­inu í gegnum Sjúkra­trygg­ingar Íslands, eigi ekki að geta greitt út arð til hlut­hafa. 

Ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar

Svandís segir hins vegar aðspurð hvort til greina komi að lög­leiða bann við arð­greiðslum út úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi á núver­andi kjör­tíma­bili, ef hún er ennþá á sömu skoðun og árið 2015, að umrætt mál sé ekki á dag­skrá rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. „Þetta mál er ekki á dag­skrá núver­andi rík­is­stjórnar,“ segir í svar­inu frá heil­brigð­is­ráð­herra. 

Aðspurð um hvað henni finn­ist um það að for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands lýsi póli­tískum skoð­unum sínum með þessum hætti segir Svandís að Maríu sé það frjáls þar sem tján­ing­ar­frelsi ríki á Íslandi: „Það ríkir skoð­unar- og tján­ing­ar­frelsi á Íslandi.“

Í gegnum árin hafa Sjúkra­trygg­ingar Íslands stundum kom­ist í umræðu fjöl­miðla sökum þess að stofn­unin hefur beitt sér með sjálf­stæðum hætti í málum sem á end­anum snú­ast um póli­tíska stefnu­mörkun. Fyr­ir­renn­ari Maríu Heim­is­dóttur í starfi, Stein­grímur Ari Arason, var með bak­grunn úr Sjálf­stæð­is­flokknum og var skip­aður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni á sínum tíma og þótti stundum draga taum einka­rekstrar og agitera fyrir eink­að­ilum í heil­brigð­is­kerf­inu. 

Deilurnar um arðinn á ís

Miðað við svör Svan­dísar, og þrátt fyrir að María hafi lýst þess­ari skoðun sinni, virð­ist þess ekki að vænta að inn­leitt verði arð­greiðslu­bann út úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á næstu árum. Enda er erfitt að sjá að sam­staða myndi nást um slíkt bann í rík­is­stjórn­inni þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki talað gegn arð­greiðslum með sama hætti og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra hefur gert í gegnum tíð­ina. 

Í tíð fyr­ir­renn­ara Svan­dísar í starfi heil­brigð­is­ráð­herra, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, var  hins vegar komið á arð­greiðslu­banni út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta bann mælt­ist ekki vel fyrir hjá lækn­unum sem reka slíkar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og var tals­verð umræða um þetta bann í sam­fé­lag­inu enda kom nokkuð á óvart að ráð­herra úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins skyldi inn­leiða slíkt bann.

 Eins og er virð­ist arð­greiðslu­bann úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum ein­ungis munu ná til einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrátt fyrir skoð­anir heil­brigð­is­ráð­herra, og for­stjóra Sjúkra­trygg­inga Íslands, á mál­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Arðgreiðslur

Einkarekið lækningafyrirtæki selt fyrir 850 milljónir eftir 585 milljóna arðgreiðslur til hluthafa
FréttirArðgreiðslur

Einka­rekið lækn­inga­fyr­ir­tæki selt fyrir 850 millj­ónir eftir 585 millj­óna arð­greiðslur til hlut­hafa

Bæði heil­brigð­is­ráð­herra og for­stjóri Sjúkra­trygg­inga eru mót­fallnar arð­greiðslum úr einka­reknum lækn­inga­fyr­ir­tækjum. Eigendur Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar þurfa að taka minnst 100 millj­ónir á ári út úr rekstr­inum til að geta staðið í skilum eftir að hafa keypt fyr­ir­tækið á 850 millj­ónir króna. Sex læknar hafa fengið 180 millj­ónir króna á mann í arð og sölu­hagnað.
Þetta er fólkið sem fær hluta af milljarðaarðinum frá Sjóvá og VÍS
FréttirArðgreiðslur

Þetta er fólkið sem fær hluta af millj­arðaarð­inum frá Sjóvá og VÍS

Stærstu hlut­hafar Sjóvár og VÍS eru líf­eyr­is­sjóðir, bankar og fjár­fest­inga­sjóðir en einnig ein­stak­lingar og eign­ar­halds­fé­lög. Fyr­ir­tækin tvö greiða út sam­tals átta millj­arða króna arð. Síld­ar­vinnslan, for­stjóri B&L, Árni Hauksson og Friðrik Hall­björn Karlsson, Steinunn Jóns­dóttir og óþekkt félag eru meðal þeirra sem fá arð­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár