Andrés vill að DV upplýsi um frétt sem hvarf: „Hafi fréttin reynst röng, þá átti að segja frá því“

DV birti frétt um Ásmund Einar Daðason sem hvarf. Andrés Magn­ús­son blaða­maður segir blaðið skulda les­endum skýr­ingar. Ásmundur svarar ekki fyr­ir­spurnum um málið.

Andrés vill að DV upplýsi um frétt sem hvarf: „Hafi fréttin reynst röng, þá átti að segja frá því“

Andrés Magn­ús­son, blaða­maður á Við­skipta­blað­inu, gagn­rýnir DV og kallar eftir því að blaðið upp­lýsi um frétt sem birt­ist um skamma hríð á vef blaðs­ins en hvarf skömmu síðar þann 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Skjáskot af for­síðu DV.is, þar sem frétt um Ásmund Einar Daðason félags­mála­ráð­herra virð­ist hafa birst fyrir mis­tök, hefur fengið nokkra dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum og vakið upp spurn­ingar, meðal ann­ars sam­sær­is­kenn­ingar um að fréttin hafi verið „stöðvuð“. Fréttin birt­ist án myndar og að því er virð­ist ótil­búin. Liggur því bein­ast við að álykta að birt­ingin hafi verið mis­tök.

Andrés víkur að mál­inu í fjöl­miðlarýni sinni í nýjasta tölu­blaði Við­skipta­blaðs­ins. „Ef heim­ildir brugð­ust, þá átti bara að segja frá því. Hafi fréttin reynst röng, þá átti að segja frá því. Og helst biðja við­kom­andi afsök­unar. En eins og staðan er veit eng­inn hvort hún er rétt eða röng, sögð eða ósögð. Það gengur ekki,“ skrifar hann. 

Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar sem Andrés vísar til er svohljóð­andi: „Ásmundur Einar Daðason á mynd­bands­upp­töku þar sem rætt var á klám­feng­inn hátt um erlendan leik­mann.“ Virðist sem þarna sé vísað til máls sem hefur verið umtalað innan íþrótta­fé­lags­ins Skalla­gríms í Borg­ar­nesi, en Ásmundur hefur setið í stjórn körfuknatt­leiks­deildar félags­ins.

Stundin sendi Ásmundi Einari fyr­ir­spurn um málið á Facebook í byrjun mán­aðar og spurði jafn­framt um ástæður þess að Ásmundur hefði ekki tjáð sig opin­ber­lega um ummæli Klaust­urs­þing­manna sem snú að hópum hverra mál­efni heyra undir ráðu­neyti Ásmundar. Ásmundur sá skila­boðin en kaus að svara þeim ekki. Stundin hefur jafn­framt sent ráð­herra og aðstoð­ar­mönnum hans tölvu­póst um málið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár