Þingmenn gagnrýna dylgjur Önnu Kolbrúnar um starfsfólk Alþingis

Þing­maður Við­reisnar segir ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur um starfs­fólk Alþingis ómak­leg. Anna Kolbrún sagði starfs­fólkið taka þátt í þeim kúltúr sem heyra má á Klaust­urs­upp­tök­unum.

Þingmenn gagnrýna dylgjur Önnu Kolbrúnar um starfsfólk Alþingis

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, segir ummæli Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, þing­manns Mið­flokks­ins, um starfs­fólk Alþingis vera ósmekk­lega, ómak­leg og henni ekki til sóma.

Anna Kolbrún var ein þeirra þing­manna sem náð­ust á upp­tökur á Klaustri bar 20. nóv­em­ber að fara hörðum orðum um stjórn­mála­menn, sér í lagi þá sem kven­kyns eru.

Í útvarps­þætt­inum Bítið á Bylgj­unni í gær sagði Anna Kolbrún að sú menn­ing sem umræð­urnar á Klaustri bar hafi verið sprottnar upp úr hafi ekki aðeins orðið til vegna stjórn­mála­manna, heldur líka starfs­fólks Alþingis.

„Ég er að tala um stofn­un­ina Alþingi vegna þess að starfs­menn­irnir, það eru allir mann­legir, þeir fara líka inn í þennan kúltúr þegar þeir fara þarna. Það er samt eitt­hvað þarna sem er óáþreif­an­legt,“ sagði Anna Kolbrún.

Í gær­kvöldi skrif­aði Jón Steindór færslu á Facebook þar sem hann sagði ummæli Önnu Kol­brúnar um starfs­fólk Alþingis ómak­leg og henni ekki til sóma. „Ég held að varla finn­ist betri hópur af sam­visku­sömu, kláru og hjálp­sömu fólki sem gætir þess í hví­vetna að vega hvorki að virð­ingu þings né þing­manna,“ skrifar hann.

Þingmenn taka undir gagnrýnina

Fleiri núver­andi og fyrr­ver­andi þing­menn taka undir orð Jóns Stein­dórs. „Ég hef ekk­ert nema gott um starfs­fólk þings­ins að segja,“ skrifar Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. „Ég veit að þau eru öll að gera sitt besta og gera það svo sann­ar­lega vel. Það eru örfá atriði sem mega betur fara en það er þá stjórn­mál­unum að kenna, ekki starfs­fólki þings­ins“

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, tekur í sama streng. „Ég einmitt dáist dag­lega að því hvað starfs­fólkið á enda­lausa þol­in­mæði til að umbera stressið og vit­leys­una sem er stundum í kringum okkur,“ skrifar hann.

„Aðdrótt­an­irnar að starfs­fólki Alþingis eru for­kast­an­legar,“ skrifar Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. „Starfs­fólk Alþingis er ein­stak­lega fag­legt og þjón­ustar þing­menn, hvar í flokki sem þeir standa, af miklum metn­aði og virð­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár