Þingmenn Flokks fólksins segja að Inga Sæland „grenji“ og „geti þetta ekki“

„Ef þið komið með okkur myndum við kunna að meta það,“ sagði Sig­mundur Davíð við Karl Gauta og Ólaf Ísleifs­son úr Flokki fólks­ins. „Þið verðið að átta ykkur á því að þið getið ekk­ert enda­laust látið ‘madame Sæland’ bara grilla ykkur eins og þið séuð ekki til.“

„Ólafur er örugg­lega sam­mála mér að Inga Sæland getur þetta ekki,“ sagði Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, á fundi með Ólafi Ísleifs­syni flokks­fé­laga sínum og fjórum þing­mönnum Mið­flokks­ins á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sam­skiptin áttu sér stað í vitna við­ur­vist og náð­ist hluti orða­skipt­anna á upp­töku. Ásamt Karli og Ólafi voru við­stödd þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir úr Mið­flokknum. Þau skjöll­uðu Ólaf og Karl Gauta og lögðu hart að þeim að skipta yfir í Mið­flokk­inn. 

Þá hædd­ust þing­menn Mið­flokks­ins óspart að Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins. „Þið verðið að átta ykkur á því að þið getið ekk­ert enda­laust látið ‘madame Sæland’ bara grilla ykkur eins og þið séuð ekki til,“ sagði Gunnar Bragi. 

„Við erum ekki að pressa á ykkur að koma bara inn í eitt­hvað,“ sagði Sig­mundur Davíð. „Við gerum okkur grein fyrir því að þið eruð burða­rás­arnir í Flokki fólks­ins og fyrir vikið, áttum okkur á því... að ef þið komið með okkur myndum við kunna að meta það.“ 

Þá lagði hann áherslu á að Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins væru sam­vinnu­flokkar. „Þeir eru á sömu línu í öllum meg­in­málum og við viljum vinna með þeim. Og við viljum ekki að ein­hver Inga Sæland taki af þeim heið­ur­inn sem þeir eiga.“ 

Gunnar Bragi tók dýpra í árinni og sagði: „Eruð það þið sem munið njóta næstu kosn­inga eða er það Inga? Er það hennar skæl og væl sem mun hvetja fólk til að kjósa flokk­inn eða er það ykkar mál­efna­lega afstaða sem það hafið kynnt í hinum og þessum málum?“ 

Athygli vekur að Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti komu Ingu Sæland nær ekk­ert til varnar en hlust­uðu þöglir á þing­menn Mið­flokks­ins úthúða henni. „Hún vill vel,“ sagði Ólafur Ísleifs­son í eitt skiptið en að öðru leyti tók hann undir með Karli Gauta um að hún væri ófær um að gegna for­mennsku í Flokki fólks­ins.

„Hún getur þetta ekki. Hún getur talað um þetta, hún getur grenjað um þetta, en hún getur ekki stjórnað,“ sagði Karl.

„Mér finnst bara mik­il­vægt að Óli og Karl fatti það að það sem þeir eru að leggja fram fyrir Flokk fólks­ins verður í engu metið þegar á reynir, af flokks­mönnum,“ sagði Bergþór Ólason úr Mið­flokknum.

Hópurinn skál­aði og fór vel á með þing­mönn­unum. „Ég vil að þessi flokkur og þessi hópur hérna hafi það að leið­ar­ljósi að þeir sem standa með hópnum séu virtir af því og aldrei sviknir þegar á reynir,“ sagði Sig­mundur Davíð. Ólafur hrós­aði honum fyrir „magn­aða ræðu“.

Stundin hafði sam­band við Karl Gauta Hjalta­son og Ólaf Ísleifs­son. „Ég kem af fjöllum,“ sagði Karl þegar Stundin spurði hvort komið hefði til álita að hann og Ólafur skiptu um flokk. „Nei nei alls ekki, aldrei heyrt þetta.“

Ólafur Ísleifs­son sagði að aldrei hefði komið til álita að sam­eina Mið­flokk­inn og Flokk fólks­ins. Þegar Stundin spurði hvort hann hefði ein­hvern tím­ann rætt við full­trúa úr Mið­flokknum um að skipta yfir í þeirra þing­flokk, vildi Ólafur ekki neita því beint. 

„Það er oft sagt við mann úr ýmsum flokkum hvort maður ætli ekki að koma yfir. Það er algengt í þing­inu. Við svörum alltaf því að svona til­boð séu gagn­kvæm. Við erum líka að reyna að fá mann­skap yfir til okkar. Þetta er oft í hálf­kær­ingi, þú heyrir það, svona komment fljúga.“

Aðspurður hvort hann yrði þá áfram í Flokki fólks­ins sagði hann að ekk­ert annað væri á dag­skrá. „Við erum með upp­brettar ermar og fullar hendur og ærin verk­efni fyrir það fólk sem sendi okkur þarna inn,“ segir hann. „Er ekki bara þannig að við ættum að bjóða Mið­flokknum og Fram­sókn­ar­flokknum og Sjálf­stæð­is­flokknum að sam­ein­ast undir for­ystu Flokks fólks­ins? Þetta eru nú hinir svona borg­ara­lega sinn­uðu flokkar. Er þetta ekki málið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár