WOW air í vanda um mánaðamótin

Leigu­salar flugvéla WOW air krefjast strangari greiðslu­skilmála en áður. Leitar Skúli Mogensen nú leiða til að tryggja félaginu innspýtingu. Mörg mál eru óleyst hvað varðar kaup Icelandair á lággjalda­flug­félaginu.

Leigu­salar flugvéla WOW air óttast að samruni félagsins og Icelandair muni ekki ganga eftir. Eru þeir tilbúnir að grípa til aðgerða ef WOW air stendur ekki skil á afborgunum sínum um mánaða­mótin eftir að félagið hefur greitt starfs­fólki sínu laun. Þetta kemur fram í Markaðnum í Frétta­blaðinu í dag.

Í bréfi sem Skúli Mogensen forstjóri sendi skuldabréfa­eigendum í gær kemur fram að leigu­salar flug­vélanna fylgist með gangi mála og krefjist nú strangari greiðslu­skilmála en áður. Slíkt hafi neikvæð áhrif á sjóð­streymi félagsins. Leigu­salarnir eru aðallega fyrirtæki sem sérhæfa sig í fjár­mögnun og útleigu flugvéla.

WOW air var nálægt því að ganga frá samningum um sölu og endur­leigu á flugvélum sínum, en áformin gengu ekki eftir, samkvæmt bréfinu. Hefði það tryggt félaginu innspýtingu upp á um 3 milljarða íslenskra króna. Félagið leitar nú allra leiða til að bæta sjóð­streymi sitt. Er til skoðunar að selja lendingar­stæði WOW air við Gatwick flugvöll í London.

Samkvæmt Markaðnum eru mörg mál enn óleyst hvað varðar samruna WOW air og Icelandair. Eitt málið varðar forgangs­réttar­ákvæði í samningum Icelandair við Félag íslenskra atvinnu­flugmanna og hvort það muni gilda hjá WOW air gangi kaupin eftir. Með kaupunum yrðu flugmenn WOW air á sama kjara­samningi og flugmenn Icelandair, sem mundi þýða mikla hækkun launa­kostnaðar hjá lággjalda­flug­félaginu WOW air.

Mikil ólga hefur verið á hlutabréfa­markaði vegna þessara hræringa. Þá skoðar Samkeppnis­eftirlitið nú hvort tilraunir til að selja WOW air til annars aðila en Icelandair hafi verið full­reyndar, en slíkt er skilyrði til að kaupin verði samþykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár