Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er ekki hér til að fá einhver eftirmæli eftir mig“

Jón Steinar Gunn­laugs­son segir sig engu varða hvað um sig verði sagt þegar yfir lýkur. Hann segir það hlægi­lega fásinnu að halda því fram að Eim­reið­ar­klíkan hafi mark­visst stýrt Íslandi eða raðað í mik­il­væg emb­ætti. Það svíði þegar hann sé sagður sér­stakur varð­hundur kyn­ferð­is­brota­manna en hann verði fyrst og fremst að fara að lögum.

Jón Steinar Gunn­laugs­son er lög­maður, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, góð­vinur Davíðs Odds­sonar og hluti af Eim­reið­ar­hópnum sem hefur á að skipa sumum valda­mestu manna á Íslandi á síð­ustu ára­tugum. Hann er líka ein­hver umdeild­asti Íslend­ingur síð­ari tíma. Í nán­ast hvert skipti sem Jón Steinar stingur niður penna, opnar munn­inn eða þegar nafn hans ber á góma í opin­berri umræðu upp­hefst orra­hríð þar sem hann er gagn­rýndur harka­lega.

Og það er ekk­ert skrýtið því Jón Steinar syk­ur­húðar ekki skoð­anir sínar. Hann hefur gagn­rýnt menn, mál­efni og jafn­vel vini sína af slíkri hörku að vin­slit hafa orðið af. Hann skrif­aði þannig heila bók þar sem hann tætti Hæsta­rétt í sig fyrir slugs, ómennsku og óvönduð vinnu­brögð. Hann hefur aldrei skirrst við að verja menn sem aðrir veigr­uðu sér við að verja, taka mál­stað sem öðrum hefði ekki dottið í hug að taka. Þannig tók hann að sér mál dæmds barn­a­níð­ings sem vildi sækja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár