Fjórða hver kona á Íslandi orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar sýna að stórt hlut­fall kvenna hefur orðið fyrir áföllum á lífs­leið­inni. Íslenskum konum býðst að taka þátt í viða­miklu rann­sókn­ar­verk­efni og hafa fyrstu nið­ur­stöður þess verið kynntar.

Fjórða hver kona á Íslandi orðið fyrir nauðgun eða nauðgunartilraun

Fjórð­ungur kvenna hefur orðið fyrir nauðgun eða nauðg­un­ar­til­raun á lífs­leið­inni og sama hlut­fall hefur verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Þetta kemur fram í fyrstu nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­verk­efn­is­ins Áfalla­saga kvenna.

Rann­sóknin hófst á vegum vís­inda­manna við Háskóla Íslands í vor. Nið­ur­stöð­urnar sýna einnig að ríf­lega 40 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni eiga sögu um fram­hjá­hald eða höfnun af hendi maka og svipað hlut­fall hefur orðið fyrir and­legu ofbeldi eða ein­elti. Einn af hverjum sex þátt­tak­endum í rann­sókn­inni á að baki lífs­hættu­leg veik­indi eða meiðsl og um það bil þriðj­ungur erf­iða fæð­ing­ar­reynslu.

 Í nóv­em­ber munu um 60 þús­und konur um allt land fá boð um þátt­töku í rann­sókn­inni, en for­sprakkar hennar eru Unnur Valdi­mars­dóttir og Arna Hauks­dóttir, pró­fess­orar við Lækna­deild Háskóla Íslands. Öllum konum á Íslandi, 18 ára og eldri, býðst að taka þátt í rann­sókn­inni með því að svara raf­rænum spurn­inga­lista um áfalla­sögu sína og heilsu­far á vefnum afalla­saga.is. 23 þús­und konur hafa nú þegar svarað spurn­inga­list­anum.

„Það er hugs­an­legt að konur með áfalla­sögu kjósi frekar að taka þátt í rann­sókn­inni en hins vegar verður að hafa í huga að í kjöl­far auk­innar opinnar sam­fé­lags­um­ræðu um kyn­bundið ofbeldi, sem birt­ist okkur m.a. í #metoo bylt­ing­unni, verður ákveðið end­ur­mat meðal kvenna á upp­lif­unum sínum.  Það er því einnig hugs­an­legt að þetta háa hlut­fall end­ur­spegli raun­veru­lega tíðni þess­ara áfalla meðal kvenna á Íslandi. Frekari gagna­söfnun frá fleiri konum og gagna­grein­ing á kom­andi mán­uðum mun leiða það í ljós,“ segir Unnur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár