Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hann er búinn að henda mér úr landi“

Starfs­fólk lýsir reiði­köstum og slæmri fram­komu eig­anda Guide to Iceland, sem er eitt helsta sprota­fyr­ir­tæki lands­ins. Meg Matich var rekin úr starfi sem rit­stjóri vef­blaðs­ins Guide to Iceland Now af eig­and­anum þegar hún nýtti ekki frí­tíma sinn í að skrifa fréttir fyrir fyr­ir­tækið.

Guide to Iceland er stór­lax í bók­un­ar­geir­anum og hefur grætt gíf­ur­lega af ferða­manna­sprengj­unni á Íslandi. Fyr­ir­tækið var stofnað 2012 og var hagn­aður af því 676 millj­ónir króna í fyrra, sem er ævin­týra­leg aukn­ing frá 178 millj­ónum 2016. Fyr­ir­tækið fékk verð­laun frá end­ur­skoð­unar- og ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­inu Deloitte fyrir örasta vöxt íslensks fyr­ir­tækis frá 2013–2016, en vöxtur Guide to Iceland var 30.314% á þessu tíma­bili. Fyr­ir­tækið næst á eftir því var aðeins með 440% vöxt á sama tíma­bili.

Eigendur Guide to Iceland greiddu sér 600 millj­ónir króna í arð eftir vel­gengni 2017, en ein­rómur er frá fyrr­ver­andi starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins að stærsti eig­andi þess, Ingólfur Abraham Shahin, sem á 55,3% fyr­ir­tæk­is­ins fer með völd sín eins og ein­ræð­is­herra. Lyk­il­starfs­maður í þróun útgáfu vef­blaðs­ins Guide to Iceland Now (GTIN) sem er enn skráður sem aðal­rit­stjóri vefs­ins stígur fram og segir sögu sína af hræðslu við aðal­eig­and­ann, Ingólf, sem hún segir að hafi ítrekað öskrað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár