Bjarni færði breskum ráðherra eintak af skýrslu Hannesar

Í skýrslunni er farið fögrum orðum um framgöngu Davíðs Oddssonar en bresk stjórn­völd gagnrýnd harðlega og gert mikið úr þeirra þætti í hruni íslenska banka­kerfisins.

Hittust í Birmingham
Hittust í Birming­ham Vel fór á með Bjarna Bene­dikts­syni og David Lidington á fundi ráð­herr­anna í dag. Og David fór ekki tóm­hentur heim. Mynd: Stjórnarráðið

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra afhenti David Lidington, stað­gengli Theresu May og ráðherra í ríkis­stjórn hennar, eintak af skýrslu Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar um erlenda áhrifa­þætti banka­hrunsins í morgun. Þetta kemur fram á stjórnar­ráðs­vefnum þar sem greint er frá fundi sem ráðherrarnir áttu í Birmingham. 

Á fundinum fóru þeir yfir nýjustu þróun í Brexit-viðræðunum og ræddu jafnframt samskipti Íslands og Bretlands eftir útgönguna, um viðskipti landanna almennt og mikilvægi þess að styrkja þau til framtíðar. Þá var fjallað um efnahagsmál á Íslandi og þróun síðustu ára.

„Bjarni afhenti Lidington eintak af nýlegri skýrslu Félags­vísinda­stofnunar Háskóla Íslands um erlenda áhrifa­þætti banka­hrunsins, en í henni er m.a. fjallað um fordæma­lausa framgöngu ríkis­stjórnar Verkamanna­flokksins í garð Íslendinga þegar þáverandi ríkis­stjórn Bretlands beitti bresku hryðjuverka­lögunum á Íslendinga í tengslum við banka­hrunið,“ segir í tilkynningunni á vef stjórnar­ráðsins. 

Í skýrslu Hannesar Hólmsteins sem David Lidington fékk að gjöf er hrun íslenska fjármála­kerfisins að vissu leyti rakið til aðgerða breskra stjórn­valda. Fjallar Hannes meðal annars um beitingu hryðjuverka­laganna og aðgerðir Breta gagnvart dóttur­félögunum Heritage Bank og Kaupthing Singer & Friedlander. Hann setur fram tilgátur um hugsanlegar ástæður þess hvernig breskir ráðamenn gengu fram og kemst að þeirri niður­stöðu að bresk stjórn­völd skuldi Íslendingum afsökunar­beiðni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár