Vaknaði af martröð um Róbert Downey þegar rannsókn var hætt á minnisbók með nöfnum stúlkna

Minn­is­bók Róberts Downey með nöfnum 335 stúlkna verður ekki rann­sökuð frekar af lög­reglu, þar sem ekki hefðu fund­ist nægar vís­bend­ingar um að brot hefðu verið framin, og þau væru fyrnd ef svo væri. Glódís Tara Fann­ars­dóttir, ein þeirra sem hann braut gegn og var skráð í minn­is­bók­inni, mót­mælir harð­lega.

Vaknaði af martröð um Róbert Downey þegar rannsókn var hætt á minnisbók með nöfnum stúlkna
Glódís Tara Fann­ars­dóttir

Glódís Tara Fann­ars­dóttir, ein af fimm konum sem lög­mað­ur­inn Róbert Downey braut gegn þegar þær voru á ungsl­ings­aldri, mót­mælir ákvörðun lög­reglu um að hætta rann­sókn á minn­is­bók manns­ins, þar sem hann hafði skrifað niður nöfn 335 kvenna eða stúlkna. 

Lög­reglan hefur ákveðið að láta af rann­sókn á minn­is­bók­inni á þeim grund­velli að brot hafi ekki verið grein­an­leg út frá gögn­unum og að ef þau hefðu átt sér stað, væru þau hvort sem er fyrnd.

„Ég var ein af þeim sem var á þess­ari skrá,“ segir Glódís á Facebook-síðu sinni um ákvörðun lög­reglu. „Hann var með skrá yfir 335 ung­lings­stelpur. Í þess­ari skrá eru stelpur sem lík­legt er að hann hafi brotið á, alveg eins og hann braut á okkur sem stigum fram síð­asta sumar þegar hann fékk upp­reist æru og sögðum okkar sögu.“

Róbert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreið­ars­son og starf­aði sem lög­maður, hafði þann hátt­inn á að þykj­ast vera ungur piltur til að tæla ung­lings­stúlkur til að hitta sig, þar sem hann sætti lagi og braut gegn þeim. Róbert var dæmdur fyrir brot gegn fimm ung­lings­stúlkum, en fékk síðar upp­reist æru af hálfu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og for­seta Íslands. Þegar upp komst um að stjórn­völd hefðu sæmt hann „óflekk­uðu mann­orði“ þrátt fyrir alvar­leg brot hans, reis upp mót­mæla­bylgja. 

Glódís lýsir því að hún hafi í gær vaknað af martröð um Róbert Downey. „Ég fæ ekki oft martraðir á nóttuni en í gær vakn­aði ég upp í kvíða vegna einnar slíkrar. Í martröð­ini var maður úr for­tíð minni að elta mig hvert sem ég fór. Í dag sé ég frétt um þennan sama mann,“ sagði Glódís, þegar hún fregn­aði í gær af nið­ur­fell­ingu rann­sókn­ar­innar. „Okkur var lofað að minn­is­bókin yrði rann­sökuð!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Uppreist æru

MenningUppreist æru

„Við erum ennþá með­virk með spill­ing­unni“

Karl Ágúst Úlfsson er einn ást­sæl­asti leik­ari og höf­undur þjóð­ar­innar. Hann hefur látið sig sam­fé­lags­mál varða í ára­tugi, fyrst á vett­vangi Spaug­stof­unnar, sem valda­menn töldu að væri á mála hjá óvin­veittum öflum. Hann segir að sig svíði þegar níðst er á lít­il­magn­anum og hvernig feðra­veldið verji sig þegar kyn­ferð­is­legt ofbeldi kemst á dag­skrá. Ný bók hans, Átta ár á sam­visk­unni, er safn smá­sagna um fólk í sál­ar­háska.

20 mín. lestur

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár