Ríkisstjórnin hættir við að afnema virðisaukaskatt af bókum

Flokks­ráð Vinstri grænna fagn­aði fyr­ir­hug­uðu afnámi bóka­skatts­ins með lófa­klappi þann 29. nóv­em­ber 2017 en nú hafa áformin verið lögð á hill­una.

Ríkisstjórnin hættir við að afnema virðisaukaskatt af bókum

Áform um nið­ur­fell­ingu virð­is­auka­skatts af bókum hafa verið lögð á hill­una. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð fjár­laga­frum­varps árs­ins 2019 sem kynnt hefur verið á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Í stað­inn er lagt til að tek­inn verði upp beinn stuðn­ingur við bókaútgef­endur til að mæta því meg­in­mark­miði að efla íslenska tungu,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Fram kemur að helsta ástæðan sé sú að nauð­syn­legt sé að „við­halda skil­virkni gild­andi VSK-kerfis“. Áformum um afnám virð­is­auka­skatts­ins var fagnað með lófa­klappi á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna þann 29. nóv­em­ber þegar flokks­menn sam­þykktu stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.

Kynning á fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar stendur nú yfir og hefur frum­varpið verið birt á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Í skatta­málum ber hæst að per­sónu­af­sláttur mun hækka um 1 pró­sentu­stig árið 2019 umfram lög­bundna 12 mán­aða hækkun vísi­tölu neyslu­verðs, sem­sagt um 540 krónum meira á mán­uði en ella hefði verið.

Þá verður hækkun þrepa­marka efra skatt­þreps miðuð við vísi­tölu neyslu­verðs í stað­inn fyrir vísi­tölu launa til að auka jafn­ræði milli tekju­hópa gagn­vart skatt­kerf­inu. Þetta kemur fram í kynn­ing­ar­efni fyrir fjár­laga­frum­varp árs­ins 2019 sem birt hefur verið á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Samhliða hækkun per­sónu­af­sláttar og teng­ingu þrep­marka efra skatt­þreps við vísi­tölu neyslu­­verðs verða barna­bætur hækk­aðar um 1,6 millj­arð. Það felur í sér 16% hækkun milli áranna 2018 og 2019. Auk hækk­unar fjár­hæða og við­mið­un­ar­marka skerð­ingar barna­bóta er í fjár­lögum gert ráð fyrir nýju þrepi skerð­ingar á barna­bótum sem er ætlað að tryggja að hækk­unin skili sér fyrst og fremst til lág­tekju- og lægri milli­tekju­hópa. Er þetta í anda til­lagna Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins um að barna­bótum sé beint í auknum mæli að lægri tekju­hópum.

Vaxta­bætur hækka einnig, um sem nemur 13% frá áætl­aðri útkomu 2018. Lagt er til að trygg­inga­gjald lækki í árs­byrjun 2019 um 0,25 pró­sentu­stig og aftur um 0,25 pró­sentu­stig í árs­byrjun 2020.

Um þá ákvörðun að afnema ekki bóka­skatt­inn segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð fjár­laga­frum­varps­ins: „Í stjórnarsáttmálanum og í fjármálaáætlun 2019–2023 var lýst yfir þeim áformum að afnema VSK af bókum. Við und­irbúning laga­breyt­ing­ar­innar voru mark­mið hennar nánar greind og meðal ann­ars leitað ann­arra leiða en þeirrar að taka upp núllþrep í VSK fyrir bókaútgáfu sem dregið hefði úr skil­virkni VSK-kerf­is­ins, auk þess að flækja það. Nið­ur­staðan er sú að í stað þess að afnema VSK verði tek­inn upp sérstakur stuðn­ingur við útgef­endur bóka á íslensku. Frumvarp þess efnis er lagt fram sam­hliða fjárlaga­frum­varp­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár