Föðurbróðir fjármálaráðherra orðinn stjórnarformaður Hvals

Rík­is­stjórnin mun þurfa að taka afstöðu til áfram­hald­andi lang­reyða­veiða á næst­unni. Frændur fjár­mála­ráð­herra eru hlut­hafar í Hval hf. og Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra hefur lagst gegn því að hval­veiði­stefna Íslands verði end­ur­skoðuð.

Föðurbróðir fjármálaráðherra orðinn stjórnarformaður Hvals

Einar Sveins­son, fjár­festir og föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, tók nýlega við stjórn­ar­for­mennsku í Hval hf. 

Fyr­ir­tækið hóf nýlega veiðar á lang­reyðum eftir tveggja ára hlé, en um er að ræða einu útgerð­ina sem stundar slíkar veiðar við Íslands­strendur. 

Reglu­gerð frá 2014 sem heim­ilar hval­veiðar við Íslands­strendur rennur út á næsta ári og mun þannig rík­is­stjórnin þurfa að taka afstöðu til áfram­hald­andi veiða. 

Veið­arnar eru umdeildar, hafa bakað Íslandi vand­ræði á alþjóða­vett­vangi og um ára­bil verið einn helsti ásteyt­ing­ar­stein­inn í sam­skiptum Íslands og Banda­ríkj­anna. 

Svo virð­ist sem ekki ríki ein­hugur um veið­arnar innan rík­is­stjórn­ar­innar.

Þannig sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra nýlega í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar að hún hefði miklar efa­semdir um að hval­veiðar væru rétt­læt­an­legar út frá umhverfis-, sam­fé­lags- og efna­hags­legum sjón­ar­miðum. 

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og flokks­fé­lagi Bjarna Bene­dikts­sonar, hefur hins vegar lagst gegn því í svari við fyr­ir­spurn Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur á Alþingi að hval­veiði­stefna Íslands verði end­ur­metin. Þá telur hann ekki unnt að tak­marka veiðar á lang­reyði með þeim hætti að þær verði óheim­ilar á yfir­stand­andi ári.

Aðeins örfá fyr­ir­tæki stunda hval­veiðar við Íslands­strendur.

Hvalur hf. er eina útgerðin sem veiðir lang­reyðar. P 126 ehf., félag í eigu Lúx­em­borg­ar­fé­lags Einars Sveins­sonar, á 2,24 pró­sent í Hval sam­kvæmt gild­andi skrán­ingu sem í gagna­grunni Credit info og félagið Eld­hrímnir ehf, í eigu Ingi­mundar Sveins­sonar bróður Einars, á 1,53 pró­sent.

Á meðal fyr­ir­tækja sem stundað hafa hrefnu­veiðar eru Hrefnu­veiði­menn ehf., Hrafn­reyður ehf. og IP Útgerð ehf, félög sem ýmist tengj­ast náið eða eru í eigu Gunnars Berg­manns Jóns­sonar, sonar Jóns Gunn­ars­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrsta vara­for­manns umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár