Ísland eftirbátur í þróunarsamvinnu og móttöku flóttamanna

Óvenju hátt hlutfall þróunar­samvinnu­útgjalda rennur til útlendinga­mála á Íslandi. Um leið samþykkjum við færri hælis­umsóknir og verjum lægra hlutfalli lands­framleiðslu til þróunar­mála en nágranna­löndin.

Ráðherrar málaflokkanna
Ráð­herrar mála­flokk­anna Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er utan­rík­is­ráð­herra og Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Aljazeera

36 prósent útgjalda Íslands til þróunar­samvinnu er kostnaður vegna komu flótta­manna og hælis­leitenda hingað til lands. Hvergi innan OECD er hlut­fallið jafn hátt. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í utan­ríkismála­nefnd Alþingis, bendir á þetta í umsögn um fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar og gagnrýnir að á Íslandi hafi tíðkast að skilgreina 50 prósent af kostnaði vegna útlendinga­mála sem þróunar­samvinnu.

Um leið og stór hluti þróunar­samvinnu Íslands rennur til flótta­mannamála er Ísland eftir­bátur hinna Norður­landanna bæði hvað varðar móttöku flótta­manna og framlög til þróunar­aðstoðar. Miðað við útgjaldarammana sem birtast í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir að breytingar verði þar á næstu árin.

Hlutfallið „mjög hátt“

Logi Ein­ars­sonfor­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

„Hlutfall þessa hluta [kostnaðar vegna móttöku hælis­leitenda] innan DAC, Þróunar­samvinnu­stofnunar OECD, er 10,9% á meðan það hlutfall er 36% á Íslandi, það hæsta innan samtak­anna. Þótt heimilt sé …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár