Katrín vildi hækka veiðigjöld fyrir kosningar en leiðir nú ríkisstjórn sem lækkar þau

„Ég held að það sé hægt að hækka þau með sann­gjörnum hætti án þess að það bitni á útgerð­inni í land­inu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í For­ystu­sæt­inu á RÚV rétt fyrir þing­kosn­ingar 2017.

Katrín vildi hækka veiðigjöld fyrir kosningar en leiðir nú ríkisstjórn sem lækkar þau

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra tal­aði fyrir því í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga að veiði­gjöld yrðu hækkuð. Nú leiðir hún rík­is­stjórn sem hyggur á lækkun veiði­gjalda um tvo millj­arða. 

„Ég tel bara að þessi gjöld hafi verið lækkuð alltof skarpt og ég held að þau geti skilað sér betur án þess að það ógni hags­munum útgerð­ar­innar í land­inu. Ég meina, horfum bara á þær arð­greiðslur sem hafa verið að fara út úr stórum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum á und­an­förnum árum upp á hund­ruð millj­óna. Finnst okkur þetta eðli­legt?“ sagði Katrín í þætt­inum For­ystu­sæt­inu á RÚV þann 11. októ­ber 2017. „Ég held að það sé hægt að hækka þau með sann­gjörnum hætti án þess að það bitni á útgerð­inni í land­inu.“

Í síð­ustu viku lagði meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar, sem sam­anstendur af þing­mönnum stjórn­ar­meiri­hlut­ans og Mið­flokks­ins, fram frum­varp um end­ur­reikn­ing veiði­gjalds sem felur í sér að gjaldið mun skila rík­is­sjóði um tveimur millj­örðum minni tekjum í ár en áður var gert ráð fyrir. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er bent á að rekstr­ar­af­koma sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafi þyngst umtals­vert á und­an­förnum árum sam­hliða mik­illi hækkun veiði­gjalds sem miði við 2 til 3 ára gamlar upp­lýs­ingar um afkomu í sjáv­ar­út­vegi. 

Við und­ir­bún­ing fjár­laga árs­ins 2018 var gert ráð fyrir því að veiði­gjald næmi um 10 millj­örðum króna á árinu, en í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar voru hins vegar áætl­aðar tekjur af veiði­gjaldi lækk­aðar um 3 millj­arða. 

Frétta­blaðið greindi frá því í dag að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefði samið við meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar um að leggja fram veiði­gjalds­frum­varpið. Þannig má segja að óbeint sé um stjórn­ar­frum­varp að ræða. Haft er eftir Katrínu að hún hafi alltaf verið þeirrar skoð­unar að veiði­gjöldin eigi að vera afkomu­tengd. „En það hefur það óhjá­kvæmi­lega í för með sér að verri afkoma skilar lægri gjöldum,“ segir hún.

Eins og áður segir tal­aði þó Katrín fyrir því í kosn­inga­bar­átt­unni í fyrra að veiði­gjöld yrðu hækkuð og vitn­aði til arð­greiðslna árin á undan því til stuðn­ings. Minnt er á þetta í nýlegu mynd­bandi frá Jæja-hópnum, aktí­vista­hópi sem varð til í kringum mót­mæli gegn rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Byggir mynd­bandið á frétt RÚV frá því í gær­kvöldi.

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt veiði­gjalds­frum­varpið harð­lega og sakað rík­is­stjórn­ina um sér­hags­muna­gæslu. Í umsögn frá Alþýðu­sam­bandi Íslands sem birt­ist á vef Alþingis í dag er bent á að með frum­varp­inu sé verið að „létta eðli­legu end­ur­gjaldi fyrir afnot af þjóð­ar­auð­lind af nokkrum af best stöddu fyr­ir­tækjum lands­ins“. ASÍ telur að erf­ið­leika minni útgerða verði að leysa á annan hátt í stað þess að nota vanda þeirra til að rök­styðja almenna lækkun veiði­gjalda. „ASÍ hefur ítrekað gagn­rýnt það að veik rekstr­ar­staða smárra útgerða sé notuð til að lækka veiði­gjöld á best settu fyr­ir­tæki lands­ins,“ segir í umsögn­inni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár