Ráðuneytum og stofnunum heimilt að „blokka“ fólk á samfélagsmiðlum

For­sæt­is­ráð­herra segir ráðu­neytum og rík­is­stofn­unum heim­ilt að „blokka“ not­endur á sam­fé­lags­miðlum og eyða ummælum í ákveðnum til­vikum. Ekki sé skylda að svara erindum sem ber­ast í gegnum slíka miðla.

Ráðuneytum og stofnunum heimilt að „blokka“ fólk á samfélagsmiðlum
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra svar­aði fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar um notkun stjórn­valda og rík­is­stofn­ana á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: Pressphotos

Ráðu­neytum og rík­is­stofn­unum er heim­ilt að „blokka“ ein­staka not­endur á sam­fé­lags­miðlum, t.d. Facebook og Twitter, og eyða efni sem telst „óvið­ur­kvæmi­legt eða æru­meið­andi“. Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata.

Flest ráðu­neyti halda úti Facebook síðum, en sum þeirra einnig Twitter, YouTube eða Instagram síðum. Í svari Katrínar kemur fram að ekki hafi verið settar reglur um notkun stjórn­valda og rík­is­stofn­ana á sam­fé­lags­miðlum. For­sæt­is­ráðu­neytið hygg­ist vinna slíkar reglur sem verði til­búnar í haust.

Einnig kemur fram í svar­inu að stjórn­völdum og stofn­unum beri ekki skylda til að svara fyr­ir­spurnum sem ber­ast í gegnum sam­fé­lags­miðl­ana. Þó að stjórn­sýslan sé óform­bundin í þeim skiln­ingi að almennt séu ekki gerðar kröfur um að erindi ber­ist á til­teknu formi, t.d. skrif­lega, í bréf­pósti eða á sér­stöku eyðu­blaði, þá líti ráðu­neytið svo á að Facebook og Twitter síður þess séu ekki form­legur far­vegur erinda.

Heimilt að eyða athugasemdum

Í svar­inu segir ráð­herra að stjórn­völd þurfi að gæta þess að notkun þeirra á sam­fé­lags­miðlum stríði ekki gegn sjón­ar­miðum um jafn­ræði borg­ara, tján­ing­ar­frelsi þeirra, frið­helgi einka­lífs og með­al­hóf. „Ekki er þó unnt að úti­loka að sú staða geti komið upp að stjórn­valdi verði talið rétt að eyða efni, ein­stökum athuga­semdum og ummælum sem sett hafa verið inn á slíkar síður ef efnið telst óvið­ur­kvæmi­legt eða æru­meið­andi,“ segir í svar­inu. „Við slíkar aðgerðir hvílir sú skylda á stjórn­valdi að gæta var­færni og með­al­hófs og beita væg­ari úrræðum séu þau tæk og leið­beina aðila.“

Þörf sé á því að stjórn­völd geti gætt vel­sæmis og sið­gæðis á því efni sem sett er inn og það brjóti ekki gegn rétt­indum ann­arra. „Ekki er heldur hægt að úti­loka, t.d. í fram­haldi af ítrek­uðum æru­meið­andi ummælum til­tek­ins ein­stak­lings, að rétt­mætt geti talist, eftir atvikum að und­an­geng­inni máls­með­ferð, að honum verði meinað að setja efni á síðu stjórn­valds,“ segir í svar­inu.

Trump meinað að „blokka“ Twitter notendur

Í síð­ustu viku komst alrík­is­dóm­stóll í New York að þeirri nið­ur­stöðu að Donald Trump Banda­ríkja­for­seta væri óheim­ilt að „blokka“ ein­staka not­endur á Twitter. Taldi dóm­stóll­inn að Twitter síða for­set­ans teld­ist opin­ber vett­vangur skoð­ana­skipta og því væri það brot á stjórn­ar­skrár­vörðu mál­frelsi Banda­ríkja­manna að meina þeim að tjá sig á síð­unni. Töldu við­mæl­endur New York Times að nið­ur­staða dóm­stóls­ins mundi hafa víð­tæk áhrif á kjörna full­trúa, sem þyrftu að passa sig að „blokka“ ekki not­endur og eiga í kjöl­farið yfir höfði sér mál­sókn.

Donald TrumpFor­set­anum er óheim­ilt að „blokka“ fólk á Twitter.

Fjallað er um tján­ing­ar­frelsi í 73. gr. íslensku stjórn­ar­skrár­innar. „Allir eru frjálsir skoð­ana sinna og sann­fær­ingar. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugs­anir sínar, en ábyrgj­ast verður hann þær fyrir dómi. Rit­skoðun og aðrar sam­bæri­legar tálm­anir á tján­ing­ar­frelsi má aldrei í lög leiða,“ segir þar. „Tján­ing­ar­frelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu alls­herj­ar­reglu eða öryggis rík­is­ins, til verndar heilsu eða sið­gæði manna eða vegna rétt­inda eða mann­orðs ann­arra, enda telj­ist þær nauð­syn­legar og sam­rým­ist lýð­ræð­is­hefðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár