Er Icelandair að flýja íslenskan hótelmarkað vegna samdráttar?

Söluverð hótel­keðju Icelandair gæti numið á bilinu 10 til 13 milljarðar króna. Ólíklegt að Icelandair hafi sagt alla söguna um ástæður sölu hótelanna.

Söluverðið á bilinu 10 til 13 milljarðar
Sölu­verðið á bil­inu 10 til 13 millj­arðar Söluverð Icelandair-hót­el­keðj­unnar gæti numið á bil­inu 10 til 13 millj­arðar króna. Sér­fræð­ingur á fjár­mála­mark­aði segir ólík­legt að kaup­andi finn­ist á Íslandi. Mynd: Icelandair Hotels

Fjármála­stjóri Icelandair Group, Bogi Nils Bogason, segir að flug­félagið hafi ákveðið að selja hótelin sem fyrir­tækið rekur af því það sé „eðlilegt að aðrir taki við hótel­rekstrinum“. Hótelin eru rekin í gegnum félagið Flugleiða­hótel ehf., annars vegar undir merkjum Icelandair hótel og hins vegar Eddu hótel. Alls er um að ræða 19 hótel.

Icelandair Group greindi frá hótel­sölunni með tilkynningu fyrir skömmu en ástæða hótel­sölunnar kom ekki skýrt fram í henni heldur var talað um að Icelandair ætlaði sér nú að einbeita sér að „kjarna­starfsemi“ sinni, flug­rekstrinum. Þá vildi Icelandair einnig, miðað við svör Boga, halda hótelunum í samstæðu Icelandair meðan verið væri að byggja Ísland upp sem heilsárs áningar­stað ferða­manna. 

Icelandair er stærsta fyrirtæki landsins út frá veltu - 155 milljarðar árið 2016 - og er skráð á hlutabréfa­markaðinn á Íslandi. Félagið er að langmestu leyti í eigu lífeyris­sjóða.

 

„Það hefur tekist mjög vel og því finnst okkur eðlilegt að aðrir taki við hótel­rekstrinum“ 

Kaupverð gæti numið 10 til 13 milljörðum

Kaupverð hótela­samstæðu Icelandair - ef kaupandi finnst - gæti numið á bilinu 10 til 13 milljörðum króna miðað við veltu félagsins. Um er að ræða rekstra­félag sem yfirleitt leigir fasteignirnar sem hýsa hótelin ef félögum eins og Reitum - þetta á til dæmis við um Hótel Natura í Reykjavík. Í tilkynningu Icelandair kom fram að áhugi væri á hótela­keðjunni innanlands sem utan. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félaginu að undan­förnu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum,“ var haft eftir Björgólfi Jóhanns­syni, forstjóra Icelandair. 

Sérfræðingur á fjármála­markaði sem Stundin ræðir við segir afar ólíklegt að einhver innlendur fjár­festir eða félag muni kaupa hótel­keðju Icelandair. Til þess sé fjár­festingin of há. Hann segir miklu líklegra að kaup­andinn þurfi að koma að utan, til dæmis einhver stór, erlend hótel­keðja eins og Radisson.  

Einbeita sér að kjarna­starf­semiOpin­berar skýr­ingar Björg­ólfs Jóhanns­sonar á hót­el­söl­unni eru að Icelandair ætli að ein­beita sér að kjarna­starf­semi sinni.

Hvað vantar í svör Icelandair?

Ein af spurningunum sem stendur eftir varðandi söluna er af hverju Icelandair vilji selja hótel­keðjuna ef hún gengur vel og skilar hagnaði inn í samstæðu Icelandair. Er trúverðugt að stór­fyrirtæki eins og Icelandair ákveði að selja frá sér góða mjólkurkú einfald­lega af því að rekstur hennar sé ekki hluti af „kjarna­starfsemi“ flug­félagsins og að það sé „eðlilegt“ að selja hótel­rekstrinum sem félagið hefur byggt upp á liðnum árum þar sem markmiðið að gera Íslands að heilsárs áfanga­stað ferða­manna hafi tekist vel upp?

Um þetta segir Bogi meðal annars: „Icelandair Group er í eðli sínu flugfélag. Flug­rekstur er okkar kjarna­starfsemi og er um 85% af veltu samstæðunnar.  Miðað við okkar áætlanir mun þetta hlutfall aukast á næstu árum. Ákvörðunin nú snýst um að setja enn meiri rekstrar- og stjórnunar­legan fókus á flug­reksturinn hjá Icelandair.“ 

Hagnaður í fyrra segir Bogi

Árið 2016 var hagnaðurinn á hótela­samstæðu Icelandair 361 milljón. Ársreikningur Icelandair Group fyrir árið 2017 liggur fyrir en ekki ársreikningur Flugleiða­hótela ehf.  í fyrra. Í ársreikningi Iceandair Group fyrir 2017 kemur ekki fram hvernig rekstur Flugleiða­hótela ehf. gekk það árið. Árið 2015, þegar sá samdráttur sem nú hefur orðið vart við í íslenskri ferðaþjónstu var ekki orðinn sjáanlegur, var hins vegar 23 milljóna króna tap á rekstrinum. Hótel­keðja Icelandair var með ríflega 10 milljarða króna tekjur árið 2016 og rúmlega 8 milljarða tekjur árið 2015.  

Bogi segir aðspurður að félagið hafi verið rekið með hagnaði árið 2017 og að horfur séu ágætar 2018. Hann segir að Icelandair hefði ekki sett hótelin í söluferli ef horfur í rekstrinum væru slæmar því þetta hefði slæm áhrif á verð þeirra. „Ákvörðunin núna tengist ekki afkomunni heldur skýrari fókus í starfseminni,“ segir Bogi og vísar þar til þess að Icelandair vilji huga að kjarna­starfsemi sinni, fluginu. 

 

„Við höfum alltaf spáð því að það myndi hægja á fjölgun ferða­manna til landsins og teljum það reyndar heilbrigða þróun.“

  

Harðnar á dalnum í ferðaþjónustunni

Miðað við svör Boga tók Icelandair meðal annars ákvörðun um að láta ógert að selja hótelin árið 2012 vegna þess að Icelandair vildi leggja sitt af mörkum til að breyta Íslandi í heilsárs áfanga­stað ferða­manna. Þetta svar bendir til að Icelandair líti svo á að félagið eigi í viðskiptum sínum og ákvörðunum meðal annars að leggja sín lóð á vogar­skálarnar fyrir hagsmuni þjóðar­búsins.

Bogi bendir á að þetta hafi tekist vel: „Á árinu 2012 fórum við í gegnum mikla stefnu­mótun. Þá var ákveðið að halda hótelunum áfram inn í samstæðunni og eitt af lykilatriðinum í stefnunni sem þá var sett snérist um að breyta Íslandi í heilsárs áfanga­stað ferða­manna. Það hefur tekist mjög vel og því finnst okkur eðlilegt að aðrir taki við hótel­rekstrinum og Icelandair snúi sér alfarið af kjarna­starfseminni, fluginu.“

Bogi segir að hótel­keðja Icelandair sé sterk, líkt og flug­rekstrar­hluti samstæðunnar. „Icelandair Group hefur á undan­förnum árum byggt upp fjárhags­lega sterk félög í flug- og hótel­rekstri. Innviðir hafa jafnframt verið byggðir upp, öflugt leiðar­kerfi, hágæða hótel o.s.frv. Í umhverfinu núna felast mikil tækifæri fyrir sterk félög eins og okkar.  Til að grípa tækifærin þarf skýran fókus og þangað stefnum við.“

Eitt af því sem líklegt má telja að vanti í þessi svör Boga sé það mat Icelandair að við taki nú erfiðari tímar í ferða­þjónustu og í bókunum ferða­manna á hótelum Icelandair á næstu misserum og árum og að þess vegna sé betra að selja hótelin út úr samstæðunni áður en þetta samdráttar­skeið hefst fyrir alvöru. Þannig geti Icelandair fengið sem hæst verð fyrir hótelin sín, líklegast frá erlendum aðilum, áður en stöðnunar og samdráttar­skeiðið í íslenskri ferða­þjónustu hefst fyrir alvöru.

Bogi segir Icelandair hafi alltaf spáð því að hægja myndi á fjölguninni í komu ferða­manna til landsins: „Í hreinskilni sagt þá hefðum við ekki sett félagið í söluferli ef við teldum horfurnar slæmar því það myndi að sjálfsögðu hafa neikvæð áhrif á verðið.  Við höfum alltaf spáð því að það myndi hægja á fjölgun ferða­manna til landsins og teljum það reyndar heilbrigða þróun.  Landið getur ekki tekið við tugprósenta aukningu ár eftir ár,“ segir Bogi. 

Afar ólíklegt verður að teljast að Icelandair hafi byggt hótel­keðjuna upp með það fyrir augum að selja hana með þessum hætti enda hefur slík skýring aldrei komið fram í máli forsvars­manna Icelandair. Sú ákvörðun virðist vera tiltölu­lega ný af nálinni.  Þessu til stuðnings má benda á að Icelandair keypti Hótel Öldu á Laugavegi í apríl síðastliðnum auk þess sem flug­félagið opnar nýtt hótel við Mývatn í sumar.

 

*Athugasemd ritstjórnar. Í fyrri útgáfu greinarinnar kom fram samkvæmt heimildum Stundarinnar að Icelandair Group hafi gert tilraun til að selja veitinga­reksturinn á hótelum félagsins í lok síðasta árs. Bogi Nils Bogason segir að þetta sé rangt  og hefur stað­hæfing um þessar tilraunir verið fjarlægð úr greininni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár