Listin að spara - Lærdómur frá Þýskalandi, Noregi og Íslandi

Þýskur við­skipta­blaða­maður sem sér­hæfir sig í Norð­ur­lönd­unum segir að Íslend­ingar séu meira fyrir neyslu en sparnað, ólíkt Þjóð­verjum, og líti svo á að eyða þurfi pen­ingum strax.

Listin að spara - Lærdómur frá Þýskalandi, Noregi og Íslandi
Sparn­aður Fólki hald­ast pen­ingar mis­jafn­lega vel, en Þjóð­verjar spara mun meira en Íslend­ingar. Mynd: Shutterstock

Hvað Íslend­ingar geta lært af Þjóð­verjum í efna­hags­málum. Og Þjóð­verjar af Íslend­ingum.

Þrátt fyrir úrhellis­rign­ingu komu yfir 10.000 manns saman í miðbæ Berlínar um miðjan apríl til að mót­mæla hækk­andi hús­næð­is­verði. Hvert hverfi borg­ar­innar hafði sína fylk­ingu og gengið var frá Pots­da­mer Platz til háborgar hipp og kúls­ins í Kreuzberg. Vissu­lega hefur fólk hér í bæ verið að kvarta undan hækk­andi hús­næð­is­verði síðan á síð­ustu öld, og Berlín er enn ódýr miðað við höf­uð­borgir eins og London eða París. Eigi að síður hefur leigu­verð óvíða hækkað meira en hér, um svo mikið sem 20 pró­sent á síð­asta ári. Krefst fólk aðgerða, svo sem hert­ari reglna um Air B and B útleigu. Auk fjölg­unar íbúa er einnig mikil aukn­ing túrista í Berlín, þeir eru nú um 12 millj­ónir á ári í borg með um 3,5 millj­ónir íbúa. Fyrr­ver­andi borg­ar­stjór­inn Klaus Wowereit sagði í upp­hafi aldar að Berlín væri „fátæk en sexí“. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár