Dómsmálaráðherra ekki viðstaddur umræður um fjármálaáætlun

Annað árið í röð sem Sigríður Andersen svarar ekki fyrir sinn mála­flokk. Þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar kalla það virð­ing­ar­leysi.

Dómsmálaráðherra ekki viðstaddur umræður um fjármálaáætlun
Sigríður ekki við­stödd Sigríður Andersen verður ekki við­stödd umræður um sinn mála­flokk í tengslum við fjár­mála­á­ætlun. Það verður annað árið í röð sem það ger­ist. Mynd: Pressphotos

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar á Alþingi eru ósáttir við að Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra, skuli ekki vera við­stödd umræður um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Mun það vera annað árið í röð sem það ger­ist. Þing­flokks­for­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar segja um virð­ing­ar­leysi að ræða.

Umræður um fjár­mála­á­ætlun 2019-2023 standa nú yfir en þær hófust í gær. Í dag gera fagráð­herra grein fyrir sínum mála­flokkum og taka þátt í umræðum um þá. Dóms­mála­ráð­herra er síð­astur í röð fagráð­herr­anna í umræð­unum sam­kvæmt til­högun þing­fund­ar­ins.

Sigríður Andersen mun hins vegar stödd erlendis og verður því ekki til taks í kvöld þegar gera má ráð fyrir að umræður um hennar mála­flokk hefj­ist. Í hennar stað mun Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svara fyrir dóms­mála­ráðu­neytið. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, fór af landi brott í dag og stóð til að Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, myndi koma í hans stað í umræð­unum. Því mót­mæltu þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar og varð úr að umræða um mála­flokk Ásmundar fór fram í gær­kvöldi, að honum við­stöddum.

Tímasóun að eiga orðastað við staðgengla

Oddný Harð­ar­dóttir

„Við töl­uðum alger­lega skýrt um að það að fagráð­herrar mæti ekki í umræðu um fimm ára fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er algjör­lega óásætt­an­legt,“ segir Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar en þing­flokks­for­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar fund­uðu með for­seta Alþingis í gær vegna stöð­unnar. Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, segir

Hanna Katrín Frið­riks­son

að þing­menn séu óánægðir með að ráð­herr­ann verði ekki­við­lát­inn. Ekki hefði átt að vera erfitt að skipu­leggja tíma ráð­herr­ans til að koma í veg fyrir það því lög kveði á um að þingslá­lykt­un­ar­til­laga um fimm ára fjár­mála­á­ætlun sé lögð fram fyrir 1. apríl. Þrátt fyrir að töf hafi orðið á fram­lagn­ingu til­lög­unnar nú hefði tíma­setn­ingin legið fyrir í meg­in­at­riðum. „Reynsla mín frá því í fyrra er sú að það sé tíma­sóun ef það eru stað­genglar fyrir ráð­herra í umræð­unum um fjár­mála­á­ætlun,“ segir Hanna Katrín og kallar fjar­veru ráð­herra virð­ing­ar­leysi. Hið sama segir Oddný Harð­ar­dóttir.

„Næst verður þetta að vera betra“

Sem fyrr segir mun Sigríður Andersen ekki heldur hafa verið við­stödd umræð­urnar á síð­asta ári. Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýndi fjár­veru hennar þá í umræð­unum. „Ég verð að gagn­rýna þetta vegna þess að við erum að vinna sam­kvæmt nýju verk­lagi, nýrri aðferða­fræði um opin­ber fjár­mál. Það verk­lag gerir þá kröfu á okkur öll að við vinnum saman, að allir ráð­herrar taki þátt í umræð­unni og að allar nefndir vinni sína vinnu út frá þessu. Mér finnst það bara alls ekki ganga að vera svo ekki við­stödd þegar umræðan á sér stað í þing­sal. Á sama tíma erum við að gera þetta í fyrsta sinn og ég vil leyfa fólki að njóta vafans, en næst verður þetta að vera betra,“ sagði Silja Dögg á Alþingi fyrir ári síðan.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár