Ranglátt að neyða fólk til að hætta að vinna vegna aldurs

Ingi­björg Eyfells, leik­skóla­stjóri í Reykja­vík, er ósátt við að þurfa að láta af störfum vegna ald­urs í sumar, á sama tíma og leik­skólar borg­ar­innar glíma við mann­eklu. Frumvarp um hækkun starfs­loka­ald­urs liggur nú fyrir hjá Alþingi.

Ranglátt að neyða fólk til að hætta að vinna vegna aldurs
Vill vinna áfram Ingi­björg Eyfells verður 70 ára í júlí og hefur verið gert að láta af störfum sem leik­skóla­stjóri hjá Reykja­vík­ur­borg. Hún segir óeðli­legt að ákveð­inn afmæl­is­dagur ráði því hvenær fólk þarf að hætta að vinna. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér finnst óeðli­legt að það sé ein­hver ákveð­inn afmæl­is­dagur sem sé not­aður sem við­mið um hvenær fólk eigi að hætta að vinna. Það þarf að vera meiri sveigj­an­leiki,“ segir Ingi­björg Eyfells, leik­skóla­stjóri á leik­skól­anum Geisla­baugi í Reykja­vík, en henni hefur verið gert að láta af störfum í sumar vegna ald­urs. Hún segir reglur um starfs­loka­aldur opin­berra starfs­manna tíma­skekkju og það sé rang­látt að neyða full­frískt fólk sem þyki vænt um starf sitt að hætta að vinna. 

Í kjara­samn­ingi Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Kenn­ara­sam­bands Íslands vegna félags stjórn­enda leik­skóla og Reykja­vík­ur­borgar segir að starfs­maður þurfi að láta af störfum frá og með næstu mán­aða­mótum eftir að hann nær 70 ára aldri. Sömu reglur gilda um starfs­menn rík­is­ins. Ingi­björg nær þeim aldri í júlí næst­kom­andi. 

Á síð­asta ári sótti hún um leyfi til að sinna starfi sínu áfram til 72 ára ald­urs, eða til júlí 2020, á grund­velli und­an­þágu­heim­ildar sem er að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár