Ökuglaðasti þingmaður Íslands fær nífalt meira í vasann en sá sænski

Stundin fékk upp­lýs­ingar um end­ur­greiðslur til þing­manna í Svíþjóð sem var synjað um á Íslandi. Sá sænski þing­maður sem keyrir mest á eigin bíl er rétt rúm­lega hálf­drætt­ingur öku­hæsta íslenska þing­manns­ins. Íslenskur þing­maður fær þrisvar sinnum hærri greiðslur en sænskur þing­maður fyrir hvern ekinn kíló­metra.

Ökuglaðasti þingmaður Íslands fær nífalt meira í vasann en sá sænski
Keyrir tvö­falt meira en öku­hæsti sænski þing­mað­ur­inn Ásmundur Frið­riks­son var ökuglað­asti þing­maður lands­ins 2017. Svíþjóð er rösk­lega fjórum sinnum stærra en Ísland en íslenskir þing­menn fá þrefalt meira í akst­ur­gjald en sænskir.

Sá þing­maður á sænska þing­inu, Mikael Svensson, sem keyrt hefur mest á eigin bíl kjör­tíma­bilið 2014 til 2018, og hlotið hæstu end­ur­greiðsl­urnar frá rík­inu í Svíþjóð, hefur keyrt rúm­lega 100 þús­und kíló­metrum minna en öku­hæsti þing­mað­ur­inn á Íslandi hefur gert á árunum 2013 til 2017. 

Svensson hefur keyrt tæp­lega 139 þús­und kíló­metra á meðan öku­hæsti íslenski þing­mað­ur­inn hefur keyrt rúm­lega 245 þús­und kíló­metra. Skatt­frjálsar end­ur­greiðslur til Mikael Svensson á tíma­bil­inu nema rúm­lega 3,1 milljón króna á meðan skatt­frjálsar end­ur­greiðslur til öku­hæsta íslenska þing­manns­ins nema rúm­lega 24 millj­ónum króna.

Skatt­frjálsar end­ur­greiðslur til íslenska þing­manns­ins nema því nærri tífaldri þeirri upp­hæð sem Mikael Svensson hefur fengið í vas­ann fyrir að nota eigin bif­reið í vinn­unni.

Þetta kemur fram þegar upp­lýs­ingar um end­ur­greiddan akst­urs­kostnað 328 sænskra þing­manna á árunum 2014 til 2018 eru bornar saman við þær tak­mörk­uðu upp­lýs­ingar um end­ur­greiddan akst­urs­kostnað þeirra tíu ónafn­greindu þing­manna á Alþingi sem mest …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund
Fréttir

Siða­nefnd: Þór­hildur Sunna „skað­aði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

For­sætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Frið­riks­son hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk end­ur­greiddan akst­urs­kostnað langt umfram það sem reglur um þing­far­ar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vís­aði for­sætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Þór­hildur Sunna hafi brotið siða­reglur.
Akstursgreiðslumál „ekki sambærileg“ Klaustursmáli og engin álitaefni um hæfi
Fréttir

Akst­urs­greiðslu­mál „ekki sam­bæri­leg“ Klaust­urs­máli og engin álita­efni um hæfi

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að ekki hafi verið talið til­efni til að beina því til nefnd­ar­manna for­sætis­nefndar að meta hæfi sitt með hlið­sjón af reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins þegar erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar um akst­urs­kostnað þing­manna voru afgreidd. Erindi Björns hafi ekki fengið „stöðu siða­reglu­máls“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár