Trúði þessu ekki fyrst Vilborg segir að þrátt fyrir að sam­band hennar við Þorstein hafi verið storma­samt og eyði­leggj­andi þá hafi ekk­ert í hans fari bent til þess að hann hefði óeðli­legar hneigðir til barna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrrverandi sambýlismaður minn er grunaður um að nauðga piltum

Vilborg Helga­dóttir, fyrr­verandi sambýlis­kona Þorsteins Halldórs­sonar, sem situr í gæslu­varðhaldi grunaður um gróf kynferðis­brot gegn ungum piltum, er ennþá að glíma við afleiðingar af sambandi við hann. Hún lánaði honum meðal annars háar fjárhæðir.

Hvernig bregstu við þegar þú kemst að því að maðurinn sem þú varst með í sambúð í um þrjú ár hefur verið úrskurðaður í gæslu­varðhald grunaður um að hafa brotið kynferðis­lega á unglings­strákum? Vilborg Helga­dóttir stóð frammi fyrir þessum veruleika í síðasta mánuði þegar fyrr­verandi sambýlis­maður hennar, Þorsteinn Halldórsson, var nafn­greindur í fjöl­miðlum sem maðurinn sem setið hefur í gæslu­varðhaldi grunaður um gróf kynferðis­brot gegn 18 ára pilti. Þess má geta að sambandi þeirra lauk árið 2013.

Brotin munu hafa byrjað þegar pilturinn var einungis 15 ára gamall og var ákæra gegn Þorsteini þingfest í október síðastliðnum. Í janúar mun pilturinn síðan hafa sent móður sinni skilaboð í gegnum samskipta­forritið Snapchat þar sem hann bað hana að koma og bjarga sér frá Þorsteini, en pilturinn hafði þá opnað fyrir möguleika í símanum sínum til að sýna stað­setningu sína. Þegar lögregla kom á vettvang kom pilturinn grátandi út af gistiheimili …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár